Vísir
Á föstudaginn ætlar Hagfræðistofnun Háskóla Íslands að bjóða til fyrirlestrar um kolefnishlutleysi. Við fyrstu sýn virðist þetta vera eðlileg fræðileg umræða um eitt stærsta hagsmunamál samtímans. En þegar rýnt er í dagskrána blasir við hreinasta fásinna, fyrirlesarinn er Frosti Sigurjónsson, maður sem hefur gert það að nánast fullu starfi á síðustu misserum að dylgja um vísindaleg svik og afbaka grundvallarlögmál eðlisfræðinnar.
Go to News Site