Fréttastofa RÚV
Valur og HK áttust við í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni Olísdeildar karla í handbolta. Valur endaði á toppi deildarinnar og HK í áttunda sæti en liðin voru hnífjöfn og framlengingu þurfti til. Leikurinn var jafn allan tímann en Valsmenn voru skrefi framar framan af og leiddu mest með tveimur mörkum, 8-6. Liðin voru stál í stál allan fyrri hálfleik þegar liðin skiptust á forystunni og Valur leiddi með einu marki í hálfleik, 16-15. Orfeus Andreou skoraði tvö mörk fyrir HK á 37. mínútu og kom þannig liðinu yfir, 21-22. HK jók þaðan forystuna og var komið með fjögurra marka forystu þegar um stundarfjórðungur lifði leiks, 23-26. Björgvin Páll Gústavsson varði þá nokkur mikilvæg skot og Valsmenn unnu forskotið upp og 31-31 stóð þegar ein mínúta lifði leiks. Hvorugt liðið fann sigurmark og því þurfti framlengingu til að skera úr um sigurvegara. Við tók fjörug framlenging þar sem Valsmenn björguðu sér með naumindum og unnu þriggja marka sigur, 42-39. Fyrr í kvöld mættust ÍBV og KA þar sem Akureyrarliðið hafði betur, 33-34.
Go to News Site