Aldrei á Bræðsluna
Mbl

Aldrei á Bræðsluna

Hinar kunnu tónlistarhátíðir Bræðslan á Borgarfirði eystra og Aldrei fór ég suður á Ísafirði hafa nú gengið í fóstbræðralag. Frá þessu greinir á Facebook-síðu Bræðslunnar sem þó lætur þess ógetið hvort menn hafi vakið sér blóðs eða rist sér jarðarmen svo sem siður var á vettvangi fornsagna við slíkar athafnir.

Go to News Site