Fólk haldi sig heima á meðan veðrið gengur yfir
Fréttastofa RÚV

Fólk haldi sig heima á meðan veðrið gengur yfir

Vonskuveðri er spáð um allt land á morgun og stórhríð suðvestantil. Appelsínugul viðvörun er á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa og miðhálendinu og gular viðvaranir í öðrum landshlutum. Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðarlögreglustjóri hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir lítið hafa breyst í kortum Veðurstofunnar í dag. „Úrkomubakkinn og þessi óveðursbakki sem er að koma að landinu, hann er bara það stór að ég held að það sé algerlega óhætt að segja að hann muni skella á og að hann muni skella illa á höfuðborgarsvæðinu á morgun,“ segir Ásgeir. Hann segir það liggja fyrir að samgöngur á höfuðborgarsvæðinu verði meira og minna lokaðar frá og með fjögur í nótt. Veðrið verði sérstaklega vont í fyrramálið og fram að hádegi en upp úr hádegi geti það tekið að skána. „Fólk á bara að vakna í fyrramálið og sjá hvort að veðrið sé ekki bara eins og því var spáð. Samgöngukerfið gæti verið í lamasessi á morgun þannig að það þarf að fylgjast vel með upplýsingum frá Strætó.“ Lágmarksopnun í grunn- og leikskólum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur mælst til þess að íbúar höfuðborgarsvæðinu haldi sig heima á morgun á meðan appelsínugul viðvörun er í gildi. Æskilegast sé að fólk bíði eftir því að veðrinu sloti eftir hádegi. Á morgun verður einnig veruleg röskun á skólastarfi í grunn-og leikskólum. Í Reykjavík verður til að mynda eingöngu lágmarksopnun með fáu starfsfólki, að er fram kemur í tilkynningu Reykjavíkurborgar. „Það er ekki gert ráð fyrir hefðbundnu skólahaldi í morgun,“ segir Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, deildarstjóri almannavarnanefnar höfuðborgarsvæðisins. „Hér á höfuðborgarsvæðinu er það þannig að skólar eru opnir en þar er verið að horfa til viðbragðsaðila og annarra sem að þurfa að komast til starfa. En þarna skiptir líka höfuðmáli að fylgjast með fréttum í fyrramálið og vera meðvituð um hver staðan verður þá.“ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mælist til þess að fólk sé ekki á ferðinni að óþörfu í fyrramálið. Veruleg röskun verður á skólahaldi. Vonskuveðri er spáð um allt land á morgun.

Go to News Site