Fréttastofa RÚV
Töluverð röskun verður á þjónustu Reykjavíkurborgar á meðan verstað veðrið gengur yfir á morgun og veðurviðvaranir eru í gildi. Í tilkynningu frá borginni segir að áhersla verði lögð á að þjónusta við viðkvæma hópa skerðist ekki. Í grunn- og leikskólum verður lágmarksopnun með fáu starfsfólki. Raskanir gætu orðið á heimaþjónustu Reykjavíkurborgar og dagskrá félagsstarfs. Neyðarskýli verða opin en loka ekki á milli 10 til 17 eins og vant er. Að auki verður aksturþjónusta fyrir fatlað fólk verður í lágmarki. Sundlaugar verða lokaðar í fyrramálið en stefnt er að því að opna þær, söfn og menningarhús eftir að veðurviðvörun fellur úr gildi. Von er á vonskuveðri víða um land í fyrramálið.RÚV / Ragnar Visage
Go to News Site