Fréttastofa RÚV
Nemendur Kvennaskólans í Reykjavík komu saman á Ingólfstorgi í dag til að fagna peysufatadeginum. Upphaflega stóð til að halda upp á peysufatadaginn á morgun en vegna slæmrar veðurspár var fögnuðinum flýtt um einn dag. Peysufatadagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur í Kvennaskólanum í yfir hundrað ár og nær hefðin aftur til ársins 1921. Við stofnun Kvennaskólans árið 1874 var venjan sú að nemendur klæddust íslenskum búningi í skólanum. Með tímanum breyttust áherslur í klæðnaði og notkun búningsins lagðist nær alfarið af. Vorið 1921 ákváðu nemendur skólans að gera sér dagamun og mæta í peysufötum til skóla en síðan þá hefur dagurinn alla jafna verið endurtekinn einu sinni á hverju skólaári.
Go to News Site