Fer í opinbera heimsókn til Kína í maí
Fréttastofa RÚV

Fer í opinbera heimsókn til Kína í maí

Donald Trump Bandaríkjaforseti.AP / Mark Schiefelbein Donald Trump Bandaríkjaforseti fer í opinbera heimsókn til Kína 14. og 15. maí næstkomandi. Trump tilkynnti um heimsóknina á samskiptamiðlinum Truth Social í gær. Hann mun funda með Xi Jingping, forseta Kína. Heimsókn Trumps til Kína var fyrirhuguð í mars en frestaðist þegar Bandaríkin réðust inn í Íran. Norska ríkisútvarpið NRK greinir frá því að kínversku forsetahjónin komi í opinbera heimsókn til Washington DC síðar á árinu. Trump segir að fundur hans með Xi Jingping verði þýðingarmikill viðburður.

Go to News Site