Fréttastofa RÚV
Áströlsk stjórnvöld hafa bannað heimsóknir frá ríkisborgurum Írans til landsins. Næstu sex mánuði mega handhafar íranskra vegabréfa því ekki koma til Ástralíu, hvorki sem ferðalangar né í atvinnuskyni. Í tilkynningu ástralska innanríkisráðuneytisins segir að átökin í Mið-Austurlöndum auki líkur á því að Íranar geti ekki eða vilji ekki yfirgefa Ástralíu þegar tímabundin vegabréfsáritun þeirra renni út. Undantekningar verða þó teknar til greina, til dæmis fyrir foreldra ástralskra ríkisborgara. „Margar vegabréfsáritanir sem voru veittar áður en átökn hófust í Íran hefðu líklega ekki verið gefnar út ef umsóknirnar bærust í dag,“ er haft eftir Tony Burke, innanríkisráðherra Ástralíu. Spenna skapaðist á milli Írans og Ástralíu fyrr í þessum mánuði þegar áströlsk stjórnvöld veittu sjö leikmönnum og starfsmönnum íranska kvennalandsliðsins í fótbolta hæli. Leikmennirnir neituðu að syngja þjóðsönginn fyrir leik í Asíukeppninni og voru í kjölfarið kallaðir föðurlandssvikarar. Fimm leikmannanna hættu síðar við hælisumsóknir sínar.
Go to News Site