Skipum í skuggaflota Rússa bannað að sigla um breska landhelgi
Fréttastofa RÚV

Skipum í skuggaflota Rússa bannað að sigla um breska landhelgi

Breska ríkisstjórnin tilkynnti í gær að breski herinn og lögregluyfirvöld fái heimild til að fara um borð og gera upptæk skip sem talin eru tilheyra skuggaflota Rússa þegar þau sigla innan landhelgi Bretlands. Rússar eru taldir nýta skuggaflotann til að komast fram hjá viðskiptaþvingunum Vesturlanda. Skipin eru flest gömul tankskip með vafasama skráningu og þeim hefur verið bannað að nota breskar hafnir og þjónustu síðan Rússar réðust inn í Úkraínu. Bresk stjórnvöld vilja með þessum auknu aðgerðum beita enn meiri þvingunum á skuggaflotann en þær sem fyrir eru í gildi og því er þeim bannað að sigla um breska landhelgi, þar með talið um Ermasundið. Skipin þurfa því að að fara lengri og kostnaðarsamari siglingaleiðir eða eiga það á hættu að verða sett í varðhald af breska hernum. Vill koma í veg fyrir hagnað Rússa á olíusölu Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands segir að þessar aðgerðir geri ekki aðeins Bretland öruggara heldur sé þetta gert til að koma í veg fyrir að Rússar hagnist á aukinni olíusölu sem þeir geti síðan nýtt til að fjármagna innrásina í Úkraínu. „Það hlakkar í Pútín yfir stríðinu í Mið-Austurlöndum því hann heldur að hann geti fyllt vasa sína af fé vegna hækkaðs olíuverðs. Þess vegna erum við að beita enn harðari þvingunum á skuggaflotann, ekki aðeins til að tryggja öryggi Bretlands heldur líka til að svelta stríðsvél Pútíns sem nýtir þennan hagnað til að fjármagna villimannslega innrás hans í Úkraínu,“ sagði Starmer. Verð og eftirspurn eftir hráolíu hefur rokið upp vegna stríðsátakanna í Mið-Austurlöndum en Bandaríkin afléttu tímabundið viðskiptaþvingunum á rússneska hráolíu. Verði skip kyrrsett í lögsögu Breta þá verður hægt að höfða mál gegn eigendum, rekstaraðilum eða áhöfninni vegna brots á breskum viðskiptaþvingunum. Breska ríkisstjórnin hefur sett viðskiptaþvinganir á 544 skip sem talin eru tilheyra skuggaflota Rússa, sem talinn er flytja um 75% af hráolíu frá Rússlandi.

Go to News Site