Fréttastofa RÚV
Janus Daði Smárason, landsliðsmaður í handbolta, mun ganga til liðs við stórlið Barcelona í sumar. Orðrómar um samning Janusar við félagið hafa verið háværir lengi en nú hefur félagið staðfest komu hans. Janus Daði fer til Barcelona frá Pick Szeged í Ungverjalandi þar sem hann hefur spilað undanfarin tvö tímabil. Þar áður var hann á mála hjá Magdeburg í Þýskalandi en hefur einnig spilað í Noregi og Danmörku. Janus Daði handsalar samninginn við Barcelona.FC Barcelona Hjá Barcelona hittir Janus fyrir Viktor Gísla Hallgrímsson sem gekk til liðs við félagið í fyrra. Liðið situr á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir og er komið í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar.
Go to News Site