Með heimþrá en ekki á heimleið
Fréttastofa RÚV

Með heimþrá en ekki á heimleið

Hilmar Freyr Gunnarsson er einn þeirra sem flýja þurftu Grindavík við rýmingu 2023. Hann segir óvissuna hafa verið versta í öllu því ferli sem við tók, en hann og fjölskylda hans hafa nú sest að í Hafnarfirði og byggja þar hús. Hilmar er byggingarfræðingur og var mjög ósáttur við tjónamat á sínu heimili og margra annarra, en það hafi verið erfitt að standa einn í þeirri baráttu út á við og pressan á að selja hafi verið mikil. Fjölskyldan hafi því kosið að selja húsið sitt enda meta þau það ónýtt eftir hamfarirnar þó svo tjónamatsaðilar hafi ekki verið á sama máli. Hilmar rakti sögu sína í þættinum Fyrst á fætur og má hlusta á viðtalið í spilaranum hér að ofan.

Go to News Site