Samþykkja breytingar á deiliskipulagi við Suðurlandsbraut vegna Borgarlínu
Fréttastofa RÚV

Samþykkja breytingar á deiliskipulagi við Suðurlandsbraut vegna Borgarlínu

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur hefur samþykkt fjórar tillögur að breytingum á deiliskipulagi vegna borgarlínu við Suðurlandsbraut. Tillögurnar voru samþykktar með fjórum atkvæðum gegn tveimur á fundi nefndarinnar í gær. Útfærsla á bílastæðum ákveðin síðar Breytingarnar felast í tilfærslu og samræmingu skipulagsmarka við nýtt deiliskipulag Suðurlandsbrautar vegna borgarlínu og taka til Suðurlandsbrautar 30-34, Ármúla 15-27, Orkureits (Ármúla 29-31), Sigtúnsreits, Hallarmúla, Ármúla og Vegmúla. Til stendur að samræma framsetningu bílastæða á svæðinu en í fundargerð kemur fram að nákvæm útfærsla verði ekki sýnd á deiliskipulagsuppdráttum, heldur verði hún ákveðin á síðari stigum. Tillögurnar voru samþykktar með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks og Vinstri grænna gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Fulltrúi Viðreisnar sat hjá. Gagnrýnir fækkun bílastæða Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins telur að þótt breytingarnar séu settar fram sem tæknileg aðlögun að borgarlínu liggi fyrir að þær feli í sér verulega skerðingu á bílastæðum á svæðinu. Í bókun Sjálfstæðisflokks segir að með því að taka bílastæði út úr uppdráttum og færa ákvarðanir um fjölda þeirra á síðari stig sé verið að draga úr gagnsæi og veikja forsendur fyrir raunhæfu mati á áhrifum skipulagsins. Niðurstaða verði færri bílastæði, án þess að það sé sett fram með skýrum hætti. Slík þróun sé ekki í samræmi við þarfir atvinnulífs á svæðinu og fyrirséð að slík fækkun muni hafa neikvæð áhrif á aðgengi, rekstrarskilyrði fyrirtækja og daglegt líf fólks. Breytingarnar muni valda aukinni töf Framsókn telur alvarlegt að ekki hafi verið tekið tillit til athugasemda fyrirtækja við Suðurlandsbraut. Suðurlandsbraut gegni því lykilhlutverki í dag að dreifa umferð inn í Laugardal og tengja umferð á leið í og úr miðbænum. Breytingarnar muni koma til með að valda aukinni töf á umferð sem muni hafa ruðningsáhrif á samgöngukerfið í heild með neikvæðri þróun. Þá muni þær hafa gríðarleg áhrif á bæði fyrirtæki á svæðinu og viðskiptavini þeirra. Í bókun kemur fram að Framsókn styðji forgangsakreinar fyrir almenningssamgöngur en telji að útfæra verði borgarlínuframkvæmdir í meiri sátt við borgarbúa.

Go to News Site