Fjórir íslenskir höfundar tilnefndir til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Fréttastofa RÚV

Fjórir íslenskir höfundar tilnefndir til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Þrettán bækur eru tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár. Þar á meðal eru myndabækur, skáldsögur og teiknimyndasögur. Tvær af bókunum eru íslenskar. Önnur er Árstíðarverur eftir Diljá Hvannberg Gagu rithöfund og Linn Janssen myndhöfund. Hin nefnist Skólastjórinn og er eftir Ævar Þór Benediktsson rithöfund og Elínu Elísabetu Einarsdóttur myndhöfund. Síðarnefnda bókin hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin fyrr á árinu . Í umsögn dómnefndar segir að Árstíðarverur sé einstaklega vel heppnuð myndrík barnabók sem sameinar fræðslu, sköpunargleði og hjartahlýju. Í frumlegri og aðgengilegri frásögn sé veðurfari og árstíðum á Íslandi gefið sviðið. „Bókin er ekki aðeins fræðandi heldur einnig hlý og mannleg. Hún endurspeglar reynslu kynslóða sem alist hafa upp við síbreytilega íslenska veðráttu og vekur bæði bros og samkennd.“ Um Skólastjórann segir dómnefndin að þar sé spunninn söguþráður sem endurspeglar það sem flest börn þrá, að fá að ráða sjálf. „Skólastjórinn talar skýrt inn í umræður á hverjum tíma um skólakerfið, völd og gjá í samskiptum kynslóðanna. Höfundi tekst með húmor og hlýju að sýna hvernig samtal og gagnkvæmur skilningur geta brúað það bil.“ Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs verða veitt 20. október í Helsinki á verðlaunahátíð sem haldin verður í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Verðlaunahafi hlýtur 300 þúsund danskar krónur í verðlaunafé, nærri 5,8 milljónir íslenskra króna. Verðlaunin voru fyrst veitt 2013 og þeim er ætlað að efla og vekja athygli á barna- og unglingabókmenntum á Norðurlöndum.

Go to News Site