Vísir
„Ég er gamall maður,“ eins og söguhetjan í Felix og Klara myndi sennilega segja. Man sumt og annað betur. Ég man til að mynda þegar ekkert sjónvarp var á fimmtudögum og hvernig nefnd fárra manna ákvað hvað væri bannað í kvikmyndahúsum og hvað ekki. Nefndin hét Kvikmyndaeftirlit ríkisins. Held að þeir hafi líka ráðið hvað mátti sjá í sjónvarpinu og hvað ekki. Upp á skjáinn kom texti. „Bönnuð börnum.“ Þá var maður rekinn úr stofunni og hurðinni lokað. Það voru erfiðar stundir.
Go to News Site