Fréttastofa RÚV
Alexander Stubb Finnlandsforseti og forsætisráðherrar Íslands og Noregs, Kristrún Frostadóttir og Jonas Gahr Støre, eru sammála um að brýnt sé að halda áfram stuðningi við Úkraínumenn. Leiðtogafundur JEF – Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar stendur yfir í Helsinki, höfuðborg Finnlands. Stubb agði fundinn til að treysta samvinnuna og auka enn í stuðning við Úkraínu. JEF hefur verið vettvangur hernaðarsamvinnu Norðurlandanna, Eystrasaltsríkjanna, Hollands og Bretlands frá árinu 2014. Alexander Stubb sagði fundinn hafa sýnt og sannað mikilvægi samstarfsins. Kristrún Frostadóttir sagði örlög þeirra í baráttunni við innrásarherinn marka hvers eðlis Rússland verður að ári þegar leiðtogar Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar hittast í Reykjavík. Hún áréttaði jafnframt þann kraft sem lægi í viðskiptaþvingunum gegn Rússum. Viðbragðssveitin er óháð Atlantshafsbandalaginu en hefur nána varnarsamvinnu við það. Fundargestir hlýddu á ávarp Volodymyrs Zelensky Úkraínuforseta og ræddu gegnum fjarfundandabúnað við Mark Carney, forsætisráðherra Kanada. Úkraínuforseti og breski forsætisráðherrann Keir Starmer lögðu í ávörpun mikla áherslu á að stöðva siglingar rússneska skuggaflotans, sem flytur olíu á laun um heimshöfin. Stubb sagði Rússland á barmi efnahagskreppu. Stuðningur ríkjanna við Úkraínu og staða öryggismála í Evrópu var aðalumræðuefni fundarins. Kristrún segist ekki vilja sjá Rússland sigri hrósandi að ári og því sé Úkraína alltaf efst á baugi; brýnt væri að viðhalda hörðum viðskiptaþvingunum gegn Rússum. Kristrún áréttaði að árverkni Íslendinga í varnarmálum hefði vaxið á undanförnum vikum og mánuðum, þótt verkefnin væru ólík þeim ríkjum sem hafa herjum á að skipa. Norski forsætisráðherrann Jonas Gahr Støre tók undir það en sagði Úkraínumenn verjast vel og á margan hátt í betri stöðu en fyrir ári. Støre sagði Bandaríkin þurfa að þrýsta enn frekar á Rússland. „Ég tel Bandaríkjamenn spila lykilhlutverk í að koma á friðarviðræðum“. Stubb sagðist vilja að viðræðum yrði haldið áfram og bætti við að staðan væri keimlík því sem alltaf hefur verið. Úkraínumenn vilji frið en Rússar ekki.
Go to News Site