Fréttastofa RÚV
„Okkur þykir þetta grafalvarlegt mál. Það hefur ekki raunverulega gerst áður í okkar minnum að það verði einhliða skerðing á réttindum launafólks af hálfu ríkisstjórnarinnar,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. Stéttarfélagið auk tveggja annarra stóð fyrir auglýsingu í Morgunblaði dagsins þar sem Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra er afhent uppsagnarbréf. Var það gert til að lýsa yfir óánægju með frumvarp ráðherra um afnám áminningarskyldu opinberra starfsmanna. „Við, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands tókum höndum saman að mótmæla þessu og krafan er að fjármálaráðherra dragi frumvarpið til baka,“ segir Sonja Ýr. Daði lagði frumvarpið fram 17. mars. Það hefur farið í gegnum fyrstu umræðu í þinginu og verið sent til efnahags- og viðskiptanefndar. Sonja segir greinilegt að keyra eigi lagabreytinguna mjög hratt í gegn. „Þá er þetta komið á þann stað að það þarf að svara með mjög skýrum hætti. Enginn man til þess að ríkisstjórnir, sama hvaða flokki þær koma frá, grafi undan trausti sem gildir í samskiptum milli aðila vinnumarkaðarins,“ segir hún og bætir við að hana hafi ekki grunað að áformin myndu ganga svona langt. Sonju þykir breytingunum fylgja harka og óbilgirni. „Þegar ríkisstjórnin beinir kastljósinu að áminningu og starfslokum hefur fókusinn farið þangað hjá ansi mörgum stjórnendum hjá ríkinu.“ Sú mynd sem stundum sé dregin upp, að ekki sé hægt að segja upp ríkisstarfsmönnum, sé röng. „Þessi uppsagnarvernd er víðast hvar annars staðar í þeim löndum sem við berum okkur saman við.“ Enginn öryggisventill Sonja Ýr segir að áformin hafi þegar haft neikvæð áhrif, meðal annars með því að grafa undan trausti. „Okkur hefur fundist miður að þetta sé klætt í búning mannauðsstjórnunar. Það er af og frá. Mannauðsstjórnun gengur út á það að laða til sín og halda í fólk og byggja undir starfsánægju og frammistöðu. Ekki hvernig megi losa þig við fólk.“ Daði tjáði sig um auglýsinguna í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi fyrr í dag. Þar sagði hann að uppsögnin hafi ekki fylgt þeim reglum sem muni gilda verði frumvarpið samþykkt. „Ég fékk til dæmis aldrei leiðbeinandi samtal og mun óska eftir því frá viðkomandi aðilum.“ Þá sagði hann að vilji ríkisstjórnarinnar stæði til þess að frumvarpið næði fram að ganga. Sonja segir þó að í frumvarpinu sé ekki gert ráð fyrir neinum öryggisventli svo sem leiðbeinandi samtali. „Það er ekki skilyrði samkvæmt frumvarpinu, svo það er enginn öryggisventill gagnvart geðþóttaákvörðunum eða ómálefnalegum uppsögnum.“
Go to News Site