Fréttastofa RÚV
Talið er að krabbameinstilfellum fjölgi um 65% hér á landi á næstu tveimur áratugum. En hvaða máli skipta forvarnir í þessu samhengi og er hægt að draga úr þessum tilfellum? Hópur evrópskra krabbameinslækna fundaði á Landspítala á dögunum. Þar á meðal var Béatrice Fervers einn helsti sérfræðingur Frakka í krabbameinsforvörnum. Hún segir að hægt sé að koma í veg fyrir allt að 40% krabbameina með heilbrigðum lífsstíl. „Reykingar, áfengi og ofþyng, mataræði og hreyfing skiptir mestu máli í þessu samhengi.“ Hún segir að Íslendingar standi ágætlega þegar það komi að forvörnum. „Íslendingar drekka til dæmis mun minn af áfengi en aðrar Evrópuþjóðir. Þar skiptir miklu máli að aðgengi að áfengi er takmarkað.“ Fjallað var um krabbameinsforvarnir í Kastljósi í gær.
Go to News Site