Ekkert sem bendir til tengsla við Hamas eða hryðjuverkasamtaka
Fréttastofa RÚV

Ekkert sem bendir til tengsla við Hamas eða hryðjuverkasamtaka

Spegilllinn hefur síðustu tvo daga aflað sér upplýsinga um Höfðatorgsmálið sem er litið alvarlegum augum innan lögreglunnar. Þrettán með réttarstöðu sakbornings Tveir menn sæta gæsluvarðhaldi, grunaðir um grófa líkamsárás og mögulega tilraun til manndráps í bílakjallaranum undir Höfðatorgi. Bílakjallarinn hefur verið vinsæll samkomustaður hjá ákveðnum hópi fólks sem hefur sótt þangað skjól frá veðri og vindum. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru báðir mennirnir sem eru í haldi erlendir ríkisborgarar, annar er frá Palestínu, hinn er fæddur í Svíþjóð en á foreldra frá Sómalíu. Alls eru þrettán með réttarstöðu sakbornings. Eftir því sem fréttastofa kemst næst snerust átökin um nokkur hundruð þúsund króna skuld og þeim lauk með því að Land Rover Defender-jeppa var ekið á einn þeirra sem ætlaði að innheimta skuldina og hann síðan stunginn. Hann lá um tíma á gjörgæsludeild Landspítalans en hefur verið útskrifaður þaðan. Lögregla hafnar tengslum sakborninga við hryðjuverkasamtök Rannsókn lögreglu er feikilega umfangsmikil og langt frá því lokið. Athygli vakti þegar Morgunblaðið fullyrti á forsíðu sinni í vikunni að sumir þeirra manna sem voru handteknir væru grunaðir um að tengjast Hamas-samtökunum og einhverjir þeirra væru á lista alþjóðalögreglunnar yfir grunaða hryðjuverkamenn. Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar, hafnar þessu og segir í samtali við fréttastofu að ekkert hafi komið fram í rannsókn lögreglu hingað til sem bendi til tengsla við Hamas eða bendli sakborninga við hryðjuverkasamtök. Fámennur hópur lögreglumanna hafi sömuleiðis aðgang að þeim gögnum sem séu til rannsóknar og hafi meðal annars fengist úr símum þeirra. Bakgrunnur kannaður reglulega Samkvæmt upplýsingum fréttastofu kannar greiningardeild ríkislögreglustjóra reglulega bakgrunn fólks sem kemur hingað frá stríðshrjáðum löndum til að ganga úr skugga um hvort það tengist einhvers konar vígasamtökum. Eitt staðfest tilvik hefur komið upp, þá var karlmanni á Akureyri vísað úr landi vegna gruns um að hann tengdist hryðjuverkasamtökum sem oftast eru kennd við íslamska ríkið. Í skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra sem kom út í fyrra sagði að lögreglu væri ekki kunnugt um að á Íslandi hefðu myndast hópar eða samfélög sem aðhylltust herskáan íslamisma. Fá tilvik hefðu komið inn á borð lögreglu þar sem menn hefðu lýst sig fylgismenn hryðjuverkasamtaka. Þeim, sem lögregla hefði metið ógn við öryggi landsmanna, hefði ýmist verið vísað úr landi eða þeir horfið á brott að eigin frumkvæði. Greiningardeildin taldi það hins vegar vaxandi áhyggjuefni að til landsins kæmi fólk, einkum ungir karlmenn frá íslömskum ríkjum, sem sýndi ógnandi framferði eða léti í ljós vilja til ofbeldisverka. Brotaþola vísað úr landi Einum í Höfðatorgsmálinu á að vísa úr landi; karlmanni frá Alsír. Samkvæmt heimildum fréttastofu var hann í hópi þeirra sem ráðist var á. Hann var leiddur handleggsbrotinn fyrir dómara þar sem hann neitaði að gefa skýrslu. Embætti ríkislögreglustjóra sagðist í svari við fyrirspurn fréttastofu ekki geta tjáð sig um einstaka mál. Embættið gæti staðfest að fjórir með alsírskt ríkisfang hefðu verið fluttir af landi brott á árinu. Flutningur til landa utan Schengen væri flókinn og tímafrekur og því mikilvægt að halda áætlun þegar skilyrði til flutninga sköpuðust. Ætti viðkomandi hlut í sakamáli væri leitast við að klára alla gagnaöflun áður en til flutnings kæmi.

Go to News Site