Fréttastofa RÚV
Atvik þar sem ekið var á björgunarsveitarmann við lokunarpóst á Reykjanesbraut í morgun er orðið lögreglumál. Jón Þór Víglundsson segir vitað hver var að verki. Björgunarsveitir séu slegnar yfir atvikinu. „Þarna gerist það að það nálgast bíll lokunarpóstinn og björgunarsveitarmaður bendir honum að stöðva til að ræða við sig. Þá eykur bílstjórinn ferð og og björgunarsveitarmaðurinn stígur frá en nær ekki að stíga nógu langt frá til þess að verða ekki fyrir hliðarspeglinum á bílnum sem slæst harkalega í útrétta hönd hans,“ segir Jón Þór. Jón Þór segir björgunarsveitarmanninn hafa þurft að fá aðhlynningu eftir atvikið en að hönd hans sé ekki brotin. Jón Þór segir atvikið engan veginn í lagi. „Þarna er björgunarsveitarfólk að vinna í umboði lögreglu og Vegagerðar að hluta. Það er enginn að gera það að gamni sínu að hindra för fólks eða stöðva og svona framkoma er bara ekki í lagi,“ segir Jón Þór. Svona framkoma er bara ekki í lagi. Vegir hafa verið lokaðir víða í dag en Jón Þór segir ekkert annað þessu líkt hafa komið upp. „Við erum náttúrulega bara slegin yfir þessu atviki þetta er þetta er ekki til eftirbreytni og ég hélt satt að segja að við værum ekki þarna.“
Go to News Site