Hafnfirðingar tóku forystu á heimavelli
Fréttastofa RÚV

Hafnfirðingar tóku forystu á heimavelli

Tveir leikir voru spilaðir í úrslitakeppni Olísdeildar karla í handbolta. FH tók á móti Fram og þar voru liðin stál í stál. Liðin Skiptust á markaskorun fyrstu mínúturnar en þegar rúmar 20 mínútur voru liðnar höfðu Framarar unnið upp þriggja marka forskot, 10-13. FH náði þó að minnka muninn fyrir hálfleiksflaut, 12-13. Á fyrstu mínútum síðari hálfleiks munaði aldrei meiru en einu marki á liðunum. Um miðbik síðari hálfleiks bar á hnökrum í sókn Fram og FH náði fjögurra marka forystu þegar tólf mínútur lifðu leiks, 23-19. Fram tókst að minnka muninn í tvö mörk en það dugði ekki til því leiknum lauk með tveggja marka sigri FH, 28-26. FH leiðir einvígið því 1-0. Haukar leiða einvígið við Aftureldingu Fyrr í kvöld mættust Haukar og Afturelding á Ásvöllum þar sem Hafnfirðingar unnu öruggan sigur. Haukar höfðu undirtökin allt frá fyrstu mínútum leiksins og liðið vann upp forskot allan fyrri hálfleik, 20-12 stóð eftir 30 mínútna leik. Loks vann liðið átta marka marka sigur, 34-26, og leiðir því einvígið 1-0. Freyr Aronsson var markahæstur Hauka með 9 mörk. Vinna þarf tvo leiki í átta liða úrslitum til að komast inn í undanúrslit. Liðin mætast aftur á mánudag.

Go to News Site