Fréttastofa RÚV
Marta Kos stækkunarstjóri Evrópusambandsins segir engin tvö aðildarferli að sambandinu eins því hvert land hafi sín sérkenni. „Það er aldrei allt eða ekkert. Slíkt væru auðveldustu samningaviðræðurnar og við nefndum það ekki því nafni,“ segir Marta í viðtali við Björn Malmquist, fréttamann RÚV í Brussel. Viðtalið við Mörtu Kos má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan. Stækkunarstjóri Evrópusambandsins segir hvert aðildarríki ESB hafa sín sérskenni og því séu engin tvö aðildarferli eins. Hún segir sambandið meðvitað um mikilvægi sjávarútvegsins fyrir Íslendinga. Marta segir aðildarferlið krefjandi en að Ísland myndi njóta góðs af því að hafa nú þegar samlagast Evrópska efnahagssvæðinu að miklu leyti. „Ég tel að ákveði Íslendingar að halda áfram með aðildarferlið verðum við í stöðu sem aldrei hefur komið upp áður, með umsóknarþjóð sem hefur nú þegar aðlagað sig svo mikið að okkur. Og þetta gefur okkur byr í seglin í þeim skilningi að þetta er í fyrsta skiptið, og hvernig tökum við á því, og hvernig við tökum á sérstöðu ykkar eins og sjávarútveginum,“ segir hún. „Við tölum saman“ „Við vitum af mikilvægi sjávarútvegs fyrir Ísland. Hann er ekki aðeins mikilvægur fyrir hagsæld ykkar, heldur einnig fyrir þjóðlífið og sjálfsmynd þjóðarinnar. Þegar ég var áðan að tala um sérstöðu að þá erum við meðvituð um að [sjávarútvegurinn] sé svo þýðingarmikill, að hann sé hluti af samsemd ykkar eða menningararfleifð, þá er það rætt í samningaviðræðum með aðildarþjóðunum,“ segir Marta. „Í þessu felst fegurð aðildarferlisins, að svo tölum við saman.“ Landfræðileg lega Íslands og alþjóðamál leiki mikilvægt hlutverk í aðildarferlinu. Hún segir margt hafa breyst síðustu ár og að aðferðafræði Evrópusambandsins þegar komi að aðildarferlinu sé ekki búin til fyrir daginn í dag. „Aðferðafræðin okkar og forsendurnar að baki henni voru hugsaðar fyrir friðartíma en nú er enginn friður.“ Hún segir fegurðina við ESB vera að sambandið sé fært um að leysa ómöguleg vandamál.
Go to News Site