Fréttastofa RÚV
Þór Þorlákshöfn og deildarmeistarar Grindavíkur mættust í lokaumferð Bónusdeildar karla í kvöld. Grindvíkingar reyndust sterkari aðilinn í kvöld sem þýðir að Þór er fallið úr deildinni. Forystan flakkaði á milli liðanna fyrst um sinn en þegar leið á annan leikhluta tóku Grindvíkingar fram úr. Ellefu stigum munaði í hálfleik, Grindavík í vil, 53-42. Þeir gulklæddu héldu forystunni og unnu loks 14 stiga sigur, 108-94. Þór kveður því Bónusdeildina eftir 15 ára veru þar. Rafail Lanaras, leikmaður Þórs.Mummi Lú
Go to News Site