Fréttastofa RÚV
Fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti í gær að eiginhandaráritun forsetans, Donalds Trumps, verði prentuð á 100 dollara seðla og verða fyrstu seðlarnir prentaðir í júní. Eiginhandaráritun forsetans verður við hlið eiginhandaráritunar fjármálaráðherra Bandaríkjanna, Scotts Bessents. Breska ríkisútvarpið BBC segir að hefð sé fyrir því að eiginhandaráritanir fjármálaráðherra Bandaríkjanna séu prentaðar á peningaseðla, og nær sú hefð allt aftur til ársins 1861. Þetta verður því í fyrsta sinn í sögu Bandaríkjanna sem eiginhandaráritun sitjandi forseta er prentuð á peningaseðla. Prentun peningaseðlanna er liður í því að minnast afmælis Bandaríkjanna en í ár eru 250 ár frá því að 13 upprunalegar nýlendur Bandaríkjanna, sem síðar urðu ríki, lýstu yfir sjálfstæði frá Bretlandi. Bessent sagði að þetta væri áhrifamikil leið til að viðurkenna sögulegan árangur Bandaríkjanna og forsetans á þessum tímamótum. Einn harðasti gagnrýnandi Bandaríkjaforseta, ríkisstjóri Kaliforníu og demókratinn Gavin Newsom, brást við þessum fréttum í færslu á samfélagsmiðlinum X . Þar sagði hann að nú myndu Bandaríkjamenn vita nákvæmlega hverjum hægt væri að kenna um hærra verð á matvöru, eldsneyti, leigu og heilsugæslu.
Go to News Site