Fréttastofa RÚV
Fólkaflokkurinn í Færeyjum er sigurvegari í þingkosningunum í Færeyjum sem fram fóru í gær. Flokkurinn fær níu þingsæti og þar með verður formaður flokksins, Beinir Johannesen, yngsti formaður landstjórar Færeyja, samkvæmt umfjöllun danska ríkisútvarpsins DR um kosningarnar. Fólkaflokkurinn er íhaldssamur hægriflokkur og Beinir hefur verið formaður flokksins síðan 2022. Hann var í skýjunum með úrslit kosninganna og sagði þær bestu kosningu flokksins í rúm 70 ár. Hann sagði að úrslitin hefðu farið fram úr sínum björtustu vonum og hann hefði ekki þorað að vonast eftir 9 þingsætum. Flokkurinn fékk sex þingsæti í þingkosningunum árið 2022. Beinir segir að næsta skref sé að ræða við hina flokkana. Hann vonast eftir því að geta myndað ríkisstjórn á næstu tveimur til þremur vikum. Alls eru 33 þingsæti á Lögþingi Færeyja og 17 þingsæti þarf til að mynda ríkisstjórn. Fyrri ríkisstjórn samanstóð af Jafnaðarmannaflokknum (Javnaðarflokkurin), Framsókn og Þjóðveldi (Tjóðveldi). Jafnaðarmannaflokkurinn tapaði þremur þingsætum í kosningunum í gær, Framsókn tapaði einu þingsæti en Þjóðveldi heldur sínum sex þingsætum.
Go to News Site