Kaleo spilar fyrir 20 þúsund manns á Þingvöllum í sumar
Fréttastofa RÚV

Kaleo spilar fyrir 20 þúsund manns á Þingvöllum í sumar

Þingvallanefnd og umboðsmaður hljómsveitarinnar Kaleo hafa skrifað undir samning vegna tónleika hljómsveitarinnar í þjóðgarðinum 20. júní. Samningurinn gerir ráð fyrir að 20 þúsund manns sæki tónleikana. Sigurður Helgi Pálmason, formaður Þingvallanefndar, segir að vel verði hugað að öllum þáttum í undirbúningi tónleikanna. Öryggisráð verði skipað og lögreglustjóri fari fyrir ráðinu. Viljayfirlýsing vegna tónleikanna var undirrituð 22. október í fyrra en Þingvallanefnd tók ekki afstöðu fyrr en ítarleg áætlun og greinargerð lágu fyrir, auk umsagna fá öllum umsagnaraðilum. Skemmst er að minnast stórtónleika Kaleo í Vaglaskógi síðasta sumar sem hátt í tíu þúsund manns sóttu. Jakob Frímann Magnússon tónleikahaldari sagði í samtali við fréttastofu í febrúar að tónleikarnir á Þingvöllum yrðu með svipuðu sniði.

Go to News Site