Fréttastofa RÚV
Til skoðunar er innan bandaríska stríðsmálaráðuneytisins að senda tíu þúsund hermenn til viðbótar til Mið-Austurlanda. Þeir myndu bætast við fimm þúsund landgönguliða og nokkur þúsund fallhlífahermenn. Þetta hefur bandaríski fjölmiðillinn Wall Street Journal eftir heimildarmönnum innan stjórnkerfisins. Markmiðið með fjölgun hermanna er sagt vera að veita Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, fleiri valkosti í hernaðarlegum aðgerðum gegn Íran á sama tíma og hann kanni friðarsamninga. Blaðið hefur eftir embættismanni að óvíst sé hvert hermennirnir yrðu sendir í Mið-Austurlöndum en að það yrði líklega nógu nálægt Íran og Kharg-eyju til að hægt væri að beita þeim þar. Tveggja daga ráðstefnu utanríkisráðherra G7, sjö stærstu iðnríkja heims, í París lýkur í dag. Marco Rubíó utanríkisráðherra Bandaríkjanna lenti í Frakklandi í morgun og sagði það vera öllum G7-ríkjunum í hag að opna á ný fyrir flutninga um Hormússund. Íranski herinn hefur nær lokað fyrir alla flutninga um sundið og þannig valdið mikilli hækkun á eldsneyti á heimsmarkaði. Um fimmtungur af olíu heimsins er fluttur um sundið á friðartímum, það skilur að Persaflóa og Ómanflóa. Íranar hafa sagt sundið opið öllum öðrum en fjandmönnum sínum. Fá skip hafa þó lagt í að sigla um sundið. Jean-Noel Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, ítrekaði á fundinum í gær hlutverk G7-ríkjanna í endurbyggingu og þróun í heiminum að loknu stríði. Heimurinn leiti jafnvægis í yfirstandandi stríði og ógnum. Áhrif af krísum á einum stað í heiminum hafi áhrif á hann allan. Áfram verði rætt um öruggan og frjálsan flutning um Hormússund.
Go to News Site