Fréttastofa RÚV
Ítalía vann í gærkvöld 2-0 sigur á Norður-Írlandi í umspili um laust sæti á heimsmeistaramóti karla í fótbolta sem haldið verður í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. Ítalir munu spila úrslitaleik við Bosníu og Herzegóvínu í Zenica í Bosníu á þriðjudag um það hvort liðið fær sæti á HM í sumar. Aðeins unnið einn leik í lokakeppni HM eftir 2006 Ítalir deila því með Þjóðverjum að vera næst sigursælasta þjóðin í sögu HM. Ítalía hefur fjórum sinnum orðið heimsmeistari, 1934, 1938, 1981 og svo síðast árið 2006. Þýskaland hefur unnið HM jafn oft en aðeins Brasilía hefur unnið heimsmeistaratitilinn oftar eða fimm sinnum. En frá því Ítalía varð heimsmeistari síðast, fyrir 20 árum hefur HM saga Ítala verið sorgarsaga. Titilvörn Ítalíu á HM 2010 var ekki beint glæsileg því þar féll liðið út í riðlakeppninni án þess að vinna leik. Frammistaðan á HM 2014 var ekki mikið skárri þó þar hafi ítalska liðið unnið England, 2-1 í fyrsta leik sínum í riðlinum. Ítalska liðið tapaði í kjölfarið fyrir Kosta Ríka og Úrúgvæ og sat eftir í riðlakeppninni annað heimsmeistaramótið í röð. Komust ekki á síðustu tvö heimsmeistaramót Til að fullkomna niðurlæginguna tókst Ítalíu svo hvorki að vinna sér inn sæti á HM 2018 né á HM 2022, þrátt fyrir að hafa þó ári áður orðið Evrópumeistari eftir sigur á Englandi í úrslitaleik EM árið 2021. Pressan er því mikil á ítalska liðið að aflétta þessari HM bölvun sem hvílt hefur á liðinu síðustu 20 ár. Til þess þarf ítalska landsliðið þó að byrja á því að vinna Bosníu á þriðjudag og vinna sér þar með sæti í lokakeppni HM í fyrsta sinn í tólf ár. Næsta verkefni væri svo að koma sér allavega upp úr riðlakeppninni.
Go to News Site