Hæstiréttur bannar manni för eftir að hann klippti á 30 veglása
Fréttastofa RÚV

Hæstiréttur bannar manni för eftir að hann klippti á 30 veglása

Hæstiréttur felldi í dag úr gildi ákvörðun sýslumannsins á Suðurlandi sem hafði hafnað því að setja lögbann á för manns um einkaveg í landi Iðu I og Iðu II í Bláskógabyggð. Veginn notaði maðurinn til að komast að veiðisvæðum við Stóru-Laxá. Þess í stað lagði Hæstiréttur fyrir sýslumann að leggja slíkt lögbann á för mannsins, og annarra sem kynnu að vera á hans vegum, gegn hæfilegri tryggingu. Dómurinn sem Hæstiréttur kvað upp í dag er nýjasti kaflinn í áralangri deilu landeigenda við forsvarsmann Bergsnasar sem tók á leigu veiðirétt í Stóru-Laxá til tíu ára í árslok 2021. Leigutakinn hefur farið um svokallaðan Veiðiveg á farartækjum og beltisgröfu til að komast að veiðisvæðum þrátt fyrir andstöðu landeigenda. Vegagerðin og sveitarstjóri Bláskógabyggðar hafa staðfest að vegurinn sé ekki í eigu hins opinbera og að ekkert komi í veg fyrir að landeigendur setji læst hlið á veg sinn til að stýra umferð. Landeigendur hafa lokað veginum með keðjum en leigutakinn rofið þær. Í dómi Hæstaréttar segir að hann hafi í um 30 skipti rofið veglása með tilheyrandi eignaspjöllum. Því til viðbótar ætli hann að óbreyttu að nota veginn áfram. Dómararnir benda líka á að lagt hafi verið lögbann við því að leigutakinn, félag hans og Stóru-Laxárdeild Veiðifélags Árnesinga veiði fyrir landi jarða Iðu I og II. Deilan snýst meðal annars um samning frá 1978 um að ekki yrði veitt úti fyrir þessum jörðum. Stóra-Laxárdeildin sagði þeim samningi upp en landeigendur segja það ekki hægt þar sem samningurinn var ótímabundinn. Dómarar við Hæstarétt segja að fallast verði á það að landeigendurnir megi bregðast við óviðkomandi umferð um veginn og ónæði sem hlýst af henni. Með því að loka veginum hafi þeir ætlað að hindra ónæði og rask og tryggja friðhelgi einkalífs og eignarréttinda sinna.

Go to News Site