Fréttastofa RÚV
Húsið sem áður hýsti Kristjánsbakarí við Hrísalund á Akureyri, gæti vikið fyrir nýrri byggingu, verði af áformum sem kynnt voru skipulagsráði bæjarins nýverið. Hugmynd er um að reisa þar sex hæða hús, með atvinnurými á neðstu hæð og íbúðum á efri hæðum. Kristjánsbakarí lokaði afgreiðslu sinni í Hrísalundi og í göngugötunni í Hafnarstræti í september í fyrra. Ástæðan var sögð þungur rekstur árin á undan, en enn er framleitt undir vörumerkinu Kristjánsbakarí fyrir heildsölumarkað. Gæðabakstur var leigjandi að húsinu og var með starfsemi eftir lokun bakarísins, fram í febrúar á þessu ári. Eigandi hússins hyggst nú gera breytingu. Tóku vel í tillöguna Eigi að verða af byggingunni þarf að gera breytingu á aðalskipulagi, en svæðið er núna skráð sem athafnasvæði og því ekki reiknað með íbúðum á lóðinni. Auk þess þyrfti að vinna deiliskipulag fyrir verslun/þjónustu og íbúðir. Kynningunni var vel tekið á fundi skipulagsráðs; „Skipulagsráð tekur jákvætt í fyrirliggjandi tillögu. Ástæða er til að líta til stærra svæðis sunnan Þingvallastrætis í tengslum við aðalskipulagsbreytingu til að kveða á um blandaða byggð íbúða og snyrtilegrar atvinnu- og þjónustustarfsemi. Skipulagsráð frestar afgreiðslu málsins og felur skipulagsfulltrúa að útbúa tillögu að lýsingu aðalskipulagsbreytingar samkvæmt framansögðu ásamt að ræða við umsækjanda um framhald málsins.“ Arkitektastofan Kollgáta kynnti hugmyndina fyrir hönd eiganda og sagði marga kosti fólgna í að breyta notkun lóðarinnar. Til dæmis væri hún frábærlega staðsett, við stofnbraut, nærri Gilja- og Lundahverfi og steinsnar frá íþróttasvæði KA. Miðað við fyrstu hönnun gæti húsið talið 4.500 fermetra, með 25-30 íbúðum, 20 bílastæðum í kjallara og utan við húsið.
Go to News Site