Fréttastofa RÚV
Lindy Lin Lindy Lin er tónskáld og listakona sem flutti frá Shanghai í Kína til Íslands árið 2023. Nú býr hún í Reykjavík og er í meistaranámi í sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi við Listaháskóla Íslands. Fyrsta plata hennar kom út 2022 þegar hún bjó enn í Shanghai. Hér á landi hefur hún meðal annars gefið út plötuna Palm upon a palm með hávaðarokkhljómsveitinni Yang Soup. Hljóðheimur Lindy er þó frekar rólegur og hún vinnur með kínverska flautu, kassagítar og raddspuna meðal annars. Uppi á sviði var Lindy með alls kyns búnað og þar var mest áberandi saumavél og bjölluarmbönd sem hringlaði í þegar hún hreyfði sig. Hún segir að allir hlutirnir hafi einhverja tengingu við líf hennar. Saumavélin tengist æskunni og hennar reynsla er að flestar konur í foreldrahlutverki eigi saumavél sem getur orðið að einhvers konar steríótýpu. Lindy langaði að endurheimta hljóm saumvélarinnar í lífi sínu. Flautan sem hún spilaði á ber nafnið dòngxiāo. Afi hennar smíðaði hana úr bambus sem hann sótti upp í fjöll. Hún telur sig heppna að hafa fengið eina af flautunum hans og vildi heiðra minningu hans með því að nota hana í tónlist sinni. Spuni er stór þáttur í verkum Lindy sem semdur lögin fyrir fram að einhverju leyti og leikur spunaleik yfir. Hún tengir þann eiginleika einnig við kvenlega ímynd þar sem ekkert er meitlað í stein. Spunaleikurinn breytist uppi á sviði eftir því hvernig henni líður og henni finnst mikilvægt að búa til pláss fyrir það. Lindy er að leggja lokahönd á plötu sem verður sennilega búin í hljóðblöndun í maí. Hún er að fara í verknám til Berlínar í Þýskalandi í þrjá mánuði og vonast til að geta spilað á einhverjum tónleikum þar og snúið svo aftur til Íslands og til að fagna útgáfunni. Her Insula by Lindy Lin Splitting Tongues Hljómsveitin Splitting Tongues spilar sambland af grindcore, hardcore og goregrind. Sveitin var stofnuð 2024 með það að markmiði að spila hraða og ákafa tónlist. Hún stærir sig jafnframt af því að vera ein af fáum grindcore-hljómsveitum á Íslandi. Sveitina skipa Arnar Már Víðisson, Sindri Þór Atlason og Sigurður Már Gestsson. Það er mikil leikgleði í hljómsveitinni. „Splitting Tongues tekur sig alls ekki alvarlega,“ undirstrikar Sindri sem á tónleikunum var í bol sem á stóð ég elska heita pabba . „Þetta er áreiðanlega eitt af bestu giggum sem við höfum tekið,“ segir Arnar. Þetta voru fyrstu tónleikar hljómsveitarinnar í ár en hún spilaði mikið í fyrra. Þeir viðurkenna að þeir hafi verið að spila sama lagalistann frá því að þeir byrjuðu. Á Upprásinni spiluðu þeir þó eitt nýtt lag sem þeir æfðu tveimur dögum fyrir tónleikana. Þeim finnst hljómsveitarlífið krefjandi þar sem það þarf mikla æfingu til að spila svona hratt. „Hvert lag þarf að vera bara absolute sprengja,“ segir Sindri en þá fer minni tími í lagasmíðina sjálfa og meiri í að æfa og verða þéttir. Þeir semja því stutt lög og hugsa ekki endilega mikið um hvað þeir setja í þau. Þau eiga bara að vera krefjandi og hröð. Þar af leiðandi eru tónleikarnir yfirleitt ekki langir. „Ég held að við förum ekki mikið yfir hálftíma,“ segir Sigurður. Liðsmenn sveitarinnar eru einnig í mörgum öðrum hljómsveitum sem getur verið snúið. Arnar er í ellefu hljómsveitum eins og er en er að hugsa um að minnka við sig. Sindri er í sjö, sem getur verið sérstaklega flókið þar sem hann býr í Garðinum og þarf að ferðast í klukkutíma þaðan á æfingar. Allt gengur það þó einhvern veginn upp. Splitting Tongues tók þátt í Músíktilraunum í ár og verður á hátíðinni Norðanpaunki á Laugarbakka í sumar. Jelena Ciric Jelena Ciric er tónlistarkona frá Serbíu sem ólst upp í Kanada og flutti til Íslands árið 2016. Hún hefur verið tilnefnd til ótal verðlauna hér á landi fyrir tónlist sína sem er einlæg og þjóðlagaskotin. Með Jelenu komu fram Karl Pestka á fiðlu og Margrét Arnardóttir á harmonikku. Þegar Jelena flutti til landsins stungu margir upp á að hún gerði tónlist með Margréti. Það gerðist ekki strax en þegar loks kom að því smullu þær saman. Jelena segir að það hafi verið svipað með Karl, sem hún hafði heyrt með öðrum. „Þegar þau tvö komu saman þá voru þau eiginlega eins og eitt hljóðfæri,“ segir Jelena en henni finnst Margrét og Karl auðga tónlist hennar mjög. Jelena semur lögin og textana en þó ekki þá hluta sem Karl og Margrét spila heldur vinna þau þá í sameiningu. Henni finnst skemmtilegra að gefa þeim rými til að semja sína hluta sjálf, sérstaklega þar sem þau þekkja hljóðfærin sín mun betur en hún. „Það sem er svo skemmtilegt við að gera tónlist er að skilja eftir pláss fyrir annað fólk til að koma með sitt,“ Jelena heldur því fram að ef hún myndi ákveða allt fyrir fram missti hún af einhverju flottara sem þau kæmu með. Á Upprásinni spiluðu þau mörg ný lög eftir Jelenu sem enn hafa ekki verið tekin upp eða gefin út. Lögin eru enn í mótun og breytast alltaf að einhverju leyti á tónleikum. Jelenu finnst gott að spila lög mikið áður en hún fer í stúdíó. Lögin á Upprásinni eru af væntanlegri plötu sem Jelena er að vinna í. Hún er samin út frá reynslu hennar af að flytja oft milli landa og hvernig það hefur mótað hana sem manneskju. Hún einblínir þó á Ísland og hvernig það var að flytja þangað og aðlagast landinu. „Ég hef stundum kallað sjálfa mig atvinnuinnflytjanda,“ kímir hún. Ásamt því er hún í fyrsta sinn að semja tónlist fyrir leikhús. Hún segir það stutt komið og vill því ekki segja mikið frá því en henni finnst það skemmtilegt og allt önnur nálgun að því að semja. Shelters Two by Jelena Ciric Upprásin er tónleikaröð í Hörpu tileinkuð grasrót íslenskar tónlistar. Hægt er að kynna sér dagskrána og næstu atriði á harpa.is/upprasin Fjallað var um þessi tónlistaratriði í Ólátagarði á Rás 2. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir neðan. Upprásin í Hörpu heldur ótrauð áfram og 10. mars komu fram Lindy Lin, Splitting Tongues og Jelena Ciric. Ólátagarður, sem er griðastaður íslenskrar grasrótartónlistar á Rás 2, tók púlsinn á tónlistarfólkinu þegar það steig af sviði.
Go to News Site