Fréttastofa RÚV
Snekkjunni La Dacha sem meinuð var hafnarkoma á Akureyri síðustu helgi var í dag leyft að koma að landi til þess að taka olíu og sækja helstu vistir áður en hún heldur burt frá Íslandi. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að hafnbanninu hafi ekki verið aflétt. „En til þess að snekkjan eigi þess kost að sigla burt frá landinu þá var samþykkt af öryggissjónarmiðum að hleypa henni til hafnar til að sækja olíu og nauðsynlegustu vistir,“ segir Ásgeir. „Það er svo ferðin frá landinu geti gengið sem best fyrir sig.“ Landhelgisgæslan samþykkti að olía yrði sett á skipið á þeim grundvelli að bæði er hlutverk Landhelgisgæslunnar að tryggja öryggi þeirra sem sigla á hafsvæðinu umhverfis Ísland en einnig kveði alþjóðlegur hafréttur á um að tryggja eigi öryggi sjófarenda. Hafnaryfirvöld, tollgæsla og Lögreglan á Akureyri hafi þá haft yfirumsjón með þeirri framkvæmd að neyðarvistir voru sóttar í snekkjuna. Ásgeir segir að Landhelgisgæslan geri ráð fyrir því að þessu loknu haldi snekkjan burt og verði farin úr íslenskri landhelgi, það er að segja út fyrir 12 sjómílur frá landi, fyrir 30. mars. Gert sé ráð fyrir að skipið eigi mögulega stutt stopp á leiðinni vegna veðurs. Snekkjunni var upprunalega meinuð hafnarkoma á grundvelli þvingunaraðgerða gegn Rússlandi fyrir innrás sína í Úkraínu sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja. Í svari frá Landhelgisgæslunni segir að ákvörðunin hafi byggt á þeim hluta þvingunaraðgerðanna sem kveður á um að skipi sem siglir undir rússneskum fána og hefur skipt um fánaríki eftir 24. febrúar 2022 er óheimill aðgangur að höfn í ríki á EES-svæðinu. Snekkjan siglir undir fána Panama en við nánari skoðun hafi komið í ljós að hún sigldi undir rússneskum fána frá því í apríl 2021 fram í september 2022. Í eigu rússnesks auðmanns Snekkjan er í eigu rússneska auðmannsins Oleg Tinkov. Tinkov er stofnandi Tinkoff netbankans sem er einn stærsti banki Rússlands og þjónustar um 20 milljónir manna. Hann seldi þó bankann stuttu eftir að hann gagnrýndi Vladímír Pútín, forseta Rússlands, og innrásina í Úkraínu opinberlega. Tinkov sagði á sínum tíma að hann hefði einungis fengið um 3% af raunvirði bankans en stjórnvöld í Rússlandi hefðu beitt hann þungum refsingum fyrir afstöðu sína.
Go to News Site