Fundu blóðugt skófar á vettvangi og lífsýni hins ákærða á hníf
Fréttastofa RÚV

Fundu blóðugt skófar á vettvangi og lífsýni hins ákærða á hníf

Grunur lögreglunnar gegn grískum manni, sem er ákærður fyrir að verða portúgölskum félaga sínum að bana í nóvember á Kársnesi í Kópavogi, hefur orðið sífellt sterkari eftir því sem rannsókn vindur fram. Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði Héraðsdóms Reykjaness yfir manninum. Maðurinn áfrýjaði úrskurðinum til Landsréttar, sem staðfesti hann í byrjun mars, en úrskurðirnir voru birtir á vef dómstólsins í dag. Maðurinn hefur síðan verið ákærður og gæsluvarðhald yfir honum framlengt til 18. apríl. Málið vakti talsverða athygli á sínum tíma en í fyrstu virtist lögregla telja að hinn látni hefði veitt sér áverkana sjálfur en félagi hins látna var síðar handtekinn grunaður um verknaðinn. Krufning bendir til þess að dánaratvik hafi verið manndráp. Neyttu kókaíns og spiluðu fjárhættuspil Í úrskurðinum segir að gögn málsins, einkum lokaniðurstaða krufningar, ummerki á vettvangi, skýrslur tæknideildar, svo sem DNA-rannsókn á haldlögðum hnífum og rannsókn á skófari á vettvangi, gefi lögreglu rökstuddan grun um að maðurinn hafi beitt hinn látna ofbeldi sem leiddi til andláts hans. Maðurinn var á heimili hins látna kvöldið sem hann lést og segir þá hafa neytt kókaíns og spilað fjárhættuspil. Hann neitaði því aftur á móti að hafa veitt manninum áverka. Hann hafi verið á heimilinu í eina til tvær klukkustundir og svo farið heim og þar næst keyrt að sundlaug og setið fyrir utan úti í bíl og spilað póker. Engin virkni á farsíma hins látna eftir heimsóknina Fyrir liggur að engin virkni var á farsíma hins látna eftir heimsóknina, en kærasta hans og systir fóru að athuga með hann daginn eftir að hann svaraði ekki farsímaskilaboðum. Þær ásamt nágranna brutu sér leið inn á heimilið eftir að hafa séð manninn inn um glugga, liggjandi á gólfinu. Er lögreglu bar að garði lá maðurinn undir eldhúsborði ber að ofan með stunguáverka á hálsi, kvið, bringu og á maga og höfuð hans var útatað í blóði. Við réttarlæknisskoðun kom í ljós að hinn ákærði í málinu var með skurðáverka á höndum en hann bar fyrir sig að hann hefði hlotið þá þegar barn hans var að meðhöndla hníf og sagðist einnig hafa verið klóraður af ketti. Skór hins ákærða ekki komið í leitirnar Lífsýni á skafti og blaði hnífs, sem fannst á heimili hins látna, reyndust vera úr báðum mönnum. Inntur eftir útskýringum á því sagðist hinn ákærði hafa snert alla hnífa hins látna. Hann hafi skorið epli og kókaínpakkningar í heimsókninni. Samkvæmt úrskurðinum laut rannsókn lögreglu einkum að tveimur mismunandi skóförum, meðal annars með blóði hins látna, sem fundust á vettvangi glæpsins. Skór sem hinn ákærði mun hafa klæðst kvöldið sem maðurinn lést hafa ekki komið í leitirnar en lögreglu þykja skýringar hans á því hvað hafi orðið um skóna ótrúverðugar. Lögregla lagði hald á annað skópar á heimili hins ákærða sem virðist passa við hitt skófarið, en búið var að þrífa skóna.

Go to News Site