Collector
Þrjár handtökur á Akureyri í gærkvöld og nótt | Collector
Þrjár handtökur á Akureyri í gærkvöld og nótt
Fréttastofa RÚV

Þrjár handtökur á Akureyri í gærkvöld og nótt

Þrír voru handteknir í tveimur aðgerðum lögreglu á Akureyri í gærkvöld og nótt. Tveir voru handteknir í aðgerð sem lögregla naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra við í gærkvöldi. Þá var einn handtekinn í kringum miðnætti grunaður um líkamsárás í heimahúsi. Andri Freyr Sveinsson, varðstjóri hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra, segir embættið ávallt kalla eftir aðstoð sérsveitarmanna þegar talið er að hún nýtist í aðgerðum. Nokkrir sérsveitarmenn eru með fasta viðveru á Akureyri en þeir fara einnig í aðgerðir annars staðar á norðanverðu landinu þegar eftir því er óskað. Hann staðfestir að tveir hafi verið handteknir í aðgerðinni í gærkvöld og að málið sé til rannsóknar. Embættinu barst tilkynning um einstakling sem ógnaði fólki með hnífi í heimahúsi á Akureyri um klukkan 23:30. Aðrir í húsinu hafi tilkynnt um ógnandi tilburði hans. Sá var handtekinn grunaður um líkamsárás. Ekki leikur grunur á að einstaklingurinn hafi beitt hnífi í árás. Þá segir Andri Freyr hann ekki hafa verið með eggvopn í fórum sínum við handtöku. Einstaklingurinn er í varðhaldi og verður tekinn í skýrslutöku síðar í dag.

Go to News Site