Fréttastofa RÚV
Björk Guðmundsdóttir og James Merry opnuðu sýninguna Echolalia og Ummyndlingar í Listasafni Íslands um síðustu helgi, á Listahátíð í Reykjavík. Sýningin stendur fram á haust og þar er að finna alltumlykjandi verk sem búa yfir hljóðrænni, sjónrænni og tilfinningalegri dýpt og einstaklingssýningu Merrys sem hefur skapað stórbrotnar grímur undanfarinn áratug, fyrir Björk og listamenn á borð við Tildu Swinton og Iris van Herpen. Björk var gestur Lóu Bjarkar Björnsdóttur og Kristjáns Guðjónssonar í Lestinni á Rás 1 og ræddi samstarfið við Merry, sköpunarferlið, umhverfisbaráttu og gervigreind. Þarf að monta sig meira Björk og Merry hafa unnið saman í 16 ár við ýmis listræn verkefni og sett upp í kringum 20 stafrænar sýningar fyrir Björk. Nú vildu þau finna nýjan vinkil og ákváðu því að leggja áherslu á handverkið sjálft, það er handverk Merrys og útsetningar Bjarkar. Björk komst nefnilega að þeirri niðurstöðu að hún hefði verið of hógvær undanfarin ár. Fólk áttaði sig oft ekki á því, margir ættingjar hennar þar með taldir, að hún gerir útsetningarnar sínar sjálf. „Eftir öll þessi ár, ég tala aldrei um þetta. Ég þarf að monta mig meira.“ „Ég ákvað að það væri minn femínismi. Kona sem getur gert útsetningar sjálf, fólk verður smá hissa.“ Þess vegna prentaði hún út útsetningarnar á verkunum Ancestress og Sorrowful Soil og hengdi þær upp í sýningarrýminu. Innsetningar hennar þekja þrjú rými og gefa gestum tækifæri til að upplifa alltumlykjandi verk sem búa yfir hljóðrænni, sjónrænni og tilfinningalegri dýpt. „Ég vildi að þemað á allri sýningunni væri útsetningar eða handverk.“ Þegar hún útsetji eða vinni tónlist í tölvu fái hún sömu tilfinningu og þegar hún var í handavinnu í skólanum eða að prjóna. „Ég upplifi kvenhandverk þegar ég er að gera útsetningar og James fer á svipaðan stað þegar hann gerir grímurnar.“ Kominn tími til að elta verkefni Merrys og styðja hann Með því að setja upp sýningu í Listasafni Íslands færir Björk tónlist sína inn í heim myndlistarinnar en það vildi hún ekki endilega gera áður. „Mér er oft boðið að gera myndlistarsýningar og ég segi alltaf bara nei. Mér er boðið að leika í bíómyndum og ég segi alltaf nei. Mér finnst bara ógeðslega gaman að vera í Smekkleysu og fara á tónleika, þá er ég heima hjá mér.“ En þegar Merry var boðið að taka þátt í Listahátíð í Reykjavík og sýna grímurnar sínar fann hún að það var kominn tími til að elta hans verkefni eftir að hann hafði elt hennar í 16 ár, „og styðja hann í þessu.“ Hún valdi lögin Ancestress og Sorrowful Soil vegna þess að þau fjalla um móður hennar. „Þetta eru lögin á Fossoru sem eru ekki sjálfhverf eða egó um mig. Þau eru um mömmu og svolítið ólík hinum lögunum á plötunni, ekki í sveppaklarínettstílnum sem var á Fossoru.“ Einnig valdi hún þessi verk vegna þess að myndheimurinn fyriri þau var mjög ríkulegur. „Við tókum upp Ancestress með Íslenska dansflokknum og Sinfóníuhljómsveitinni sem fór út í móa með fiðlurnar sínar í rigningunni með okkur. Það var rosalegt verkefni.“ Eins hafi hún útsett Sorrowful Soil fyrir níu radda kór sem Hamrahlíðarkórinn söng og í vetur fór hún og tók hverja einustu rödd upp aftur fyrir sýninguna, þannig að hægt er að hlusta á hvern söngvara fyrir sig inni í rýminu. „Finna einstaklinginn en líka hópinn.“ Hún valdi Ancestress líka vegna þess að í myndbandinu eru svo mörg andlit, bæði dansarar og hljóðfæraleikarar, sem bera grímur Merrys. „Þá er önnur beinabygging, ekki bara mitt andlit. Þetta var líka tilraun til að leyfa James að blómstra á svölunum mínum.“ Vön því að enginn sé mikilvægari en annar Í gegnum árin hefur Björk unnið með fjölda listamanna en hún byrjar iðulega ein á því að semja eða útsetja í tölvunni. „Þetta er rosalega mikil einvera, sem ég elska. Ég elska að vera ein. En svo kemur alltaf, þegar það er hálft ár eftir, tilfinning um að það sé best að bjóða gestum inn. Þá kemur festival-stemning.“ „Það eru alltaf bara nokkrir á hverri plötu en svo kannski gerist það, þegar ég er búin að gera plötur í 40 ár, að þá allt í einu er þetta orðinn rosalegur hópur af fólki.“ Fyrsta plata Bjarkar kom út þegar hún var 11 ára og hún byrjaði í sinni fyrstu hljómsveit um 14 ára aldurinn. Þegar hún var 17 ára gekk hún til liðs við hljómsveitina Tappa tíkarrass sem vakti mikla athygli. „Ég var alveg 13 ár í hópvinnu sem er mjög mikill sósíalismi. Það er enginn mikilvægari en hinir og pönkið og allt það.“ „Þegar ég gerði síðan fyrstu plötuna mína, þegar ég var 27 ára, þá fór ég meira í að vera egóisti og fór beint í narsissismann. En þá hélt þessi hópvinna áfram í myndrænu hlutunum,“ útskýrir Björk. Henni þykir mjög gaman að vera í samstarfi um tónlistarmyndböndin með teyminu sínu, setjast niður og henda hugmyndum í pott. Í svitakasti í hálft ár Björk segir að það hafi verið áhugaverð upplifun þegar þau fóru að setja saman sýninguna og þurftu að tilgreina hver gerði hvað við hliðina á hverju verki. „Ég hef aldrei gert það áður. Við vorum í svitakasti í hálft ár, ég og James, því við vissum ekkert hvað við áttum að setja á þessa veggi.“ Popparar af hennar kynslóð hafi gert tónlistarmyndbönd frá því á níunda áratugnum þar sem tónlistarfólkið er tæknilega séð listrænir stjórnendur en titluðu sig aldrei sem slíka. „Þótt flestar hugmyndirnar hafi verið mínar fyrst en síðan tók leikstjórinn það, hljóp með það og gerði að einhverju allt öðru.“ Það er mjög eðlilegt samstarf að mati Bjarkar. Hún ákvað því að skrifa á hina ýmsu veggi að hún hafi verið listrænn stjórnandi verkefnanna en var ekki að fara mikið aftur í fortíðina og gefa sér titil þar. „Fortíðin er bara fortíðin.“ Gerði fyrstu grímurnar sjálf en svo gerði Merry þær bara miklu betur Samstarf Bjarkar og Merrys hefur tekið miklum breytingum frá því það hófst og Björk segir að það sé í raun mjög óvenjulegt. Hún réði hann fyrst fyrir plötuna Biophiliu vegna þess að hana langaði að hafa verkefnið mjög akademískt og blanda tónlist við náttúru. Merry lærði í Oxford-háskóla og er hámenntaður. Hann var aðstoðarmaður listamannsins Damiens Hirsts og safnaði fyrir hann fjöldanum öllum af fiðrildum og var því fullkominn í verkefni Bjarkar. „Fyrst var hann aðstoðarmaðurinn minn í þrjú, fjögur ár. Þá var hann ekkert að gera þetta myndræna með mér og var í rauninni bara að svara netpóstum og bóka flug.“ Síðan hjálpaði hann henni með rannsóknarvinnuna fyrir verkefni hennar. „Fyrir mér blandast þetta allt. Ég gerði sjálf mínar fyrstu grímur en svo gerði hann þær bara miklu betur. Hann tók þennan bolta og fór með hann til tunglsins.“ Síðan stökk hann út í djúpu laugina þegar hann gerðist listrænn stjórnandi myndrænu hliðarinnar á plötunni Vulnicura og hefur unnið náið með Björk að hinu sjónræna síðan. „Þetta blæðir fram og til baka í öllum deildum. Þetta er 16 ára samstarf og engin þrjú ár eru eins. Þetta er rosalega mikið af dóti.“ „Hverju erum við að skila af okkur?“ Björk hefur verið ötull talsmaður náttúruverndar og beitt sér fyrir ýmsum verkefnum á því sviði. Hún hélt til að mynda upp á sextugsafmælið sitt með því að stefna íslenska ríkinu vegna sjókvíaeldis. Hún segir skrítið að umhverfismál séu ekki lengur efst á baugi í fjölmiðlum. Eftir að hafa barist í um 26 ár ákvað hún að skipta um ham. „Núna er þetta bara see you in court .“ Hún var orðin þreytt á að öskra og hafa hátt í fjölmiðlum án þess að nokkuð gerðist. Björk og suðurameríska söngkonan Rosalía tóku höndum saman og gáfu út lagið Oral. Allur ágóðinn af því rennur í málskostnað vegna málaferla gegn sjókvíaeldi. „Það kom inn miklu meiri peningur af því en við héldum. Við erum núna með fimm mál í gangi og erum að reyna að taka þetta í víðara samhengi og tala líka um gæði vatns og svoleiðis mál.“ Í raun sé ekki til lagaumhverfi sem ver náttúruna, það vanti tungumálið. Hún ákvað að einbeita sér að málum sem fræðilegur möguleiki er að vinna fyrir dómi og séu nógu stór til að hafa áhrif. „Þessi málaferli taka alltaf svo langan tíma en góðu fréttirnar eru að lagið heldur áfram að seljast.“ Að hennar mati er ekki í boði að gefast upp. „Ég þarf bara að horfa á börnin mín og finn þá ákveðna ábyrgð, að maður alla vega reyndi. Það ýtir við mér, hverju erum við að skila af okkur?“ Björk Guðmundsdóttir hefur alltaf sagt nei við því að setja upp myndlistarsýningar en þegar James Merry, samstarfsmanni hennar, var boðið að setja upp sýningu vildi hún styðja hann og sjá hann blómstra líkt og hann hefur stutt hana í 16 ár. Rætt var við Björk Guðmundsdóttur í Lestinni á Rás 1. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.
Go to News Site