Collector
Giriş Yap
Háttsettur liðsmaður talibana dæmdur til 42 ára fangavistar | Collector
Háttsettur liðsmaður talibana dæmdur til 42 ára fangavistar

Háttsettur liðsmaður talibana dæmdur til 42 ára fangavistar

Haji Majibullah, fimmtugur fyrrum háttsettur liðsforingi talibana í Afganistan, var dæmdur til 42 ára fangavistar í gær fyrir mannrán og hryðjuverk. Hann var handtekinn í Úkraínu og framseldur til Bandaríkjanna árið 2020. Hann var ákærður fyrir og játaði í fyrra að hafa í nóvember 2008 rænt David Rohde, blaðamanni New York Times, og tveimur almennum, afgönskum ríkisborgurum. Annar var túlkur og hinn bílstjóri Rohdes. Ritstjórn blaðsins tókst að halda brottnámi Rohdes leyndu til að stefna lífi hans ekki í frekari hættu og segir honum hafa tekist að flýja fangara sína í júní 2009. Eins lagði Majibullah fram gögn sem sönnuðu aðild hans að mannskæðum hryðjuverkum, samkvæmt yfirlýsingu bandaríska dómsmálaráðuneytisins. Þrír bandarískir hermenn létu lífið í árás vígasveita undir stjórn Majibullahs í júní 2008. Fyrir þessi brot hlaut Majibullah 42 ára fangelsisdóm. Todd Blanche, sitjandi dómsmálaráðherra, segir hverja þá verða hundelta sem skaði Bandaríkjamenn eða taki þátt í mannskæðum hryðjuverkaárásum. Þeim verði gert að standa reikningsskil gerða sinna, fyrr eða síðar.

Go to News Site