Collector
Giriş Yap
Ísland mætir Argentínu í nótt - Messi spilar en óvíst hve mikið | Collector
Ísland mætir Argentínu í nótt - Messi spilar en óvíst hve mikið

Ísland mætir Argentínu í nótt - Messi spilar en óvíst hve mikið

Karlalandslið Íslands í knattspyrnu mætir ógnarsterku liði ríkjandi heimsmeistara frá Argentínu í vináttulandsleik í nótt. Leikurinn fer fram í Alabama í Bandaríkjunum og er síðasti leikur Argentínumanna í undirbúningi liðsins fyrir heimsmeistaramótið sem hefst á fimmtudag. Leikurinn hefst klukkan eitt í nótt. Búast má við að Ísland tefli fram sínu sterkasta liði. Nokkuð brösulega hefur gengið undanfarin misseri. Síðasti sigur liðsins kom gegn Aserbaísjan í nóvember í fyrra. Síðan þá hefur liðið gert tvö jafntefli og tapað þremur leikjum. Síðasti leikur liðsins var gegn Japan í lok maí. Ísland tapaði leiknum 1-0. Messi mun spila en óvíst hve mikið Ísland hefur aðeins einu sinni áður mætt Argentínu. Það var á heimsmeistaramótinu í Rússlandi 2018 þar sem Ísland náði fræknu 1-1 jafntefli. Alfreð Finnbogason skoraði þá jöfnunarmark á 45. mínútu en öllu frægari er markvarsla Hannesar Þórs Halldórssonar á vítaspyrnu Lionel Messi á 63. mínútu leiksins. Samkvæmt Lionel Scaloni, þjálfara Argentínu, mun Messi spila í leiknum en hann þorði ekki að segja til um hversu mikið. Argentína, sem situr í efsta sæti styrkleikalista FIFA, hefur unnið síðustu sex leiki og skorað í þeim 18 mörk en fengið á sig aðeins eitt.

Go to News Site