Fréttastofa RÚV
Allt er sagt með kyrrum kjörum meðfram suðurströnd Hormússunds eftir að Bandaríkjaher gerði þar árásir fyrr í kvöld. Kona gengur framhjá veggmynd í Teheran sem sýnir flugskeyti stefna að bandarísku herskipi.AP / Vahid Salemi Íranska ríkisfréttastöðin IRIB greindi frá þessu á tólfta tímanum í kvöld. Bandaríkjaher segir árásirnar gerðar í varnarskyni og í kjölfar þess að herþyrla var skotin niður yfir Hormússundi í gær. Flugmenn hennar sluppu báðir ómeiddir. Íranskir ráðamenn segjast ekki bera ábyrgð á atlögunni að þyrlunni, her landsins hafi engar árásir gert við sundið undanfarinn sólarhring. Árásum Bandaríkjamanna verði svarað með tilheyrandi hætti.
Go to News Site