Collector
Giriş Yap
Þingið samþykkir fjármögnun aðgerða gegn innflytjendum | Collector
Þingið samþykkir fjármögnun aðgerða gegn innflytjendum

Þingið samþykkir fjármögnun aðgerða gegn innflytjendum

Með því að báðar deildir Bandaríkjaþings samþykktu 70 milljarða dala fjármögnun til heimavarnaráðuneytisins lauk margra mánaða deilum um framtíð herts landamæraeftirlits og brottvísana. Niðurstaðan telst mikill sigur fyrir Donald Trump forseta í aðdraganda þingkosninga í nóvember. Um það bil 38 milljarðar renna til þeirrar umdeildu innflytjendastofnunar ICE næstu þrjú árin. Atkvæði féllu eftir flokkslínum í fulltrúadeildinni í gær og demókratar saka Repúblikana um að afhenda stjórninni heimildir til að halda áfram harkalegum aðgerðum gegn innflytjendum án þess að tryggja takmarkanir og eftirlit með innflytjendastofnuninni. Demókratar þvertóku fyrir að samþykkja að fé yrði lagt til hennar nema fulltrúum hennar yrði gert að ganga mildilegar fram í viðkvæmum aðstæðum, dregið úr grímunotkun þeirra og þeim bannað að fara inn á heimili án dómsúrskurðar. Repúblikanar höfnuðu því öllu og gripu þess í stað til reglna sem heimila samþykki fjármögnunarfrumvarpa með einföldum meirihluta í öldungadeildinni. Deilurnar um fjármögnunina hófust eftir að fulltrúar hennar drápu tvo almenna borgara í mótmælum í Minneapolis.

Go to News Site