Fréttastofa RÚV
Yfir 1,2 milljónir manns hlustuðu á messu páfans á Cibeles-torgi í Madríd á Spáni í morgun. Páfinn hvatti Spánverja til að iðka kaþólska trú. Spænsku konungshjónin voru meðal þeirra sem fylgdust með messunni. Leó páfi kom til Spánar í gær og er í sjö daga heimsókn, þeirri fyrstu í 15 ár. Í predikun sinni hvatti páfinn Spánverja til að líta ekki á trúarbrögð sem safn fortíðar sem hægt væri að heimsækja heldur sem „skóla trúar sem hægt sé að sækja í enn þann dag í dag.“ Um 56 prósent Spánverja líta á sig sem kaþólikka í dag, samkvæmt nýrri könnun Rannsóknarmiðstöðvar félagsfræðinnar, sem er sjálfstæð ríkisstofnun. Þetta hlutfall hefur lækkað mikið frá 1970 þegar 90 prósent Spánverja sögðust vera kaþólikkar. AFP-fréttaveitan ræddi við nokkra sem hlýddu á messuna. Nico Aldeanueva, sem er frá Philadelphia í Bandaríkjunum en er í heimsókn á Spáni, sagði páfann vera sameiningartákn á tímum þar sem sundrung er á mörgum stöðum samfélagsins. „Það er mikið um skautun og ágreining í stjórnmálum, í samfélagsmálum, í efnahagsmálum. Páfinn er með þessari heimsókn að reyna að hjálpa okkur öllum,“ sagði Ana Milagros. Páfinn fer einnig til Barcelona, þar sem hann blessar nýjan kirkjuturn Sagrada Familia og á fimmtudag heimsækir hann Kanaríeyjar með Pedro Sanchez, forsætisráðherra landsins.
Go to News Site