Collector
Áfram þungbúið en milt | Collector
Áfram þungbúið en milt
Fréttastofa RÚV

Áfram þungbúið en milt

Áfram er útlit fyrir þungbúið en milt veður á landinu með hægri breytilegri átt. Á sunnudag er von á ívið meiri úrkomu, sérstaklega á Austurlandi. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands: Næstu daga verða smálægðir á sveimi við landið. Vindátt verður því breytileg, en lengst af fremur hægur vindur. Nokkuð vætusamt og frekar þungbúið en milt veður. Einhverjar sólarglennur brjótast þó líklega í gegnum skýjahuluna af og til og hámarkshitinn gæti komist svolítið yfir 15 stig þar sem hlýjast veður. Útlit er fyrir að sunnudagurinn verði ívið blautari en dagarnir á undan, einkum um landið austanvert.

Go to News Site