Fréttastofa RÚV
Æfingaleikir karlalandsliða fara fram um þessar mundir þar sem liðin eru í óða önn við að undirbúa heimsmeistaramótið sem hefst í næstu viku. Portúgal og Síle mættust í kvöld og tvö rauð spjöld litu dagsins ljós í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Þá var enn markalaust og Felipe Faundez og Joao Cancelo lentu í samstuði. Það voru hins vegar ekki þeir sem voru spjaldaðir því upp úr sauð hjá Iván Romá og Rafael Leao. Báðir voru spjaldaðir og bæði lið fóru því manni færri inn í síðari hálfleik. Heimsmeistaramótið í fótbolta hefst á fimmtudag. Liðin eru þessa dagana að spila æfingaleiki víða um heim í undirbúningi sínum. Það var hiti í leik Portúgals og Síle þar sem tveir fengu rautt samtímis. Fyrsta markið skoraði Gonçalo Guedes á 58. mínútu og kom Portúgölum yfir, 1-0. Um stundarfjórðungi síðar bætti Bruno Fernandes við öðru marki Portúgala og allt stefndi í 2-0 sigur. Sílemenn voru hins vegar ekki af baki dottnir og Lucas Cepeda lagaði stöðuna fyrir liðið í uppbótartíma en lokatölur reyndust 2-1 fyrir Portúgala. Portúgal keppir sinn fyrsta leik á HM gegn Kongó 17. júni en fyrst hittir liðið fyrir Nígeríu í síðasta leik sínum fyrir mótið á miðvikudag. Síle komst ekki á HM í ár. Þýskaland lagði Bandaríkin Þjóðverjar spiluðu við gestgjafa Bandaríkanna þar sem þeir þýsku höfðu betur, 2-1. Kai Havertz kom Þýskalandi yfir strax á annarri mínútu leiksins. Antonee Robinsson jafnaði fyrir Bandaríkin á 37. mínútu en Leroy Sané skoraði sigurmark Þjóðverja eftir undirbúning Havertz.
Go to News Site