Fréttastofa RÚV
Sjómannadagurinn er á morgun en víða um land er tekið forskot á sæluna, brugðið á leik við hafnir, farið í siglingar og stiginn dans í dag. Í Bolungarvík hófust hátíðarhöldin í gær og þar var mikið um dýrðir í dag. Bryndís Elsa Guðjónsdóttir, markaðs- og kynningarfulltrúi Bolungarvíkur, segir veðurguðina hafa verið með Bolvíkingum í liði í dag. „Við fengum alveg frábært veður. Það var spáð rigningu en hún lét ekki sjá sig. Ég finn það alveg núna að ég hefði átt að vera með sólarvörn,“ segir Bryndís. Fjölskyldudagskrá sjómannadagsins í Bolungarvík einkenndist af tónlistarflutningi. Börnin gátu skemmt sér í hoppuköstulum og fengið andlitsmálningu. Þá var róðrakeppnin á sínum stað. Bryndís segir að á morgun sé dagskráin hátíðlegri. Boðið verður upp á guðsþjónustu og að henni lokinni verða blómsveigar lagðir að minnismerki sjómanna. Dagskránni í dag er þó ekki alveg lokið því klukkan 23 hefst sjómannaballið. „Það er skemmtilegra að hafa ball á laugardegi,“ segir Bryndís. „Það er alltaf mjög mikið fjör og mikið dansað á sjómannaballinu í Bolungarvík. Fyrir ballið er alltaf hátíðarkvöldverður sjómanna og húsið því troðfullt af fólki í góðu skapi þegar dansleikurinn hefst.“
Go to News Site