Fréttastofa RÚV
Heimsmeistaramót karla í fótbolta hefst á fimmtudag þegar flautað verður til leiks í Mexíkó með leik heimamanna við Suður-Afríku. HM í ár verður í fyrsta sinn haldið í þremur löndum, í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó og verða 48 lið í lokakeppninni í fyrsta sinn. Allir 104 leikir mótsins verða sýndir á RÚV og RÚV 2. Hér förum við yfir allt það helsta sem þú þarft að vita um HM í fótbolta á RÚV. Fjórtán mismunandi leiktímar Þar sem leikið er í mörgum borgum vítt og dreift um gestgjafalöndin þrjú, falla leikirnir á nokkur tímabelti og því ekki beint fastir leiktímar. Yfirleitt er þó kvöldleikur sem hefst klukkan 19:00 eða 20:00 öll kvöld, en aðrir leikir á undan eða á eftir. Fjórtán mismunandi leiktímar eru á þessu móti. Íslenskir sjónvarpsáhorfendur eru þó í nokkuð góðum málum þar sem flautað er til leiks frá klukkan 16 síðdegis að íslenskum tíma til klukkan fjögur að nóttu. Reyndir lýsendur RÚV verður með reynslumikla lýsendur sem munu lýsa leikjum HM. Almarr Ormarsson, Einar Örn Jónsson, Gunnar Birgisson, Gunnar Ormslev, Hörður Magnússon og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson munu lýsa leikjum mótsins. Meðlýsendur verða Bjarni Guðjónsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Kjartan Henry Finnbogason og Ólafur Kristjánsson. Farið yfir allt það helsta Stofan hitar upp fyrir valda leiki og hver leikdagur er gerður upp á HM kvöldi. Edda Sif Pálsdóttir og Helga Margrét Höskuldsdóttir verða þar við stjórnvölinn og fá til sín góða gesti. Eiður Smári Guðjohnsen, Arnar Gunnlaugsson, Adda Baldursdóttir, Óskar Hrafn Þorvaldsson og Albert Brynjar Ingason verða helstu sérfræðingar Stofunnar en að auki mæta fleiri þjóðþekktir sparkspekingar sem sérstakir leynigestir þegar líður á mótið. Auk þess að fara yfir leiki dagsins í Stofunni, verður fjallað ríkulega um HM í íþróttafréttum sjónvarps, útvarps og á ruv.is auk þess sem samfélagsmiðlar RÚV íþrótta verða vel virkir. Sérstakur HM vefur RÚV er þegar kominn í loftið og má finna hér. Spurningastofan Upphitun RÚV fyrir mótið er þegar hafin, og má til dæmis benda á skemmtiþættina Spurningastofuna sem finna má í Spilara RÚV . HM í fótbolta hefst 11. júní og allir leikir mótsins verða sýndir á rásum RÚV. Hér förum við yfir það helsta varðandi umgjörð RÚV frá mótinu. Einnig hafa 12 upphitunarþættir verið á dagskrá RÚV þar sem hver þáttur tekur fyrir hvern riðil fyrir sig og liðin í þeim. Þessir þættir heita Leiðin á HM og eru einnig aðgengilegir í Spilara RÚV . HM í fótbolta hefst 11. júní og allir leikir mótsins verða sýndir á rásum RÚV. Hér förum við yfir það helsta varðandi umgjörð RÚV frá mótinu. Hér fyrir neðan má svo sjá hvernig allir riðlarnir 12 á HM líta út. Riðlakeppnin hefst 11. júní og henni lýkur 27. júní. Eftir að riðlakeppninni lýkur taka við 32-liða úrslit sem verða leikin 28. júní til 3. júlí og degi síðar hefjast 16-liða úrslit. HM lýkur svo með úrslitaleiknum sunnudagskvöldið 19. júlí klukkan 19:00. Yfirlit yfir allar beinar útsendingar RÚV má sjá hér. Svona horfir þú á HM erlendis Íslendingar erlendis geta horft á réttindavarið efni á RÚV ef þeir eru með rafræn skilríki. Hægt er að skrá sig inn í spilara RÚV á vefnum í gegnum vafra (ruv.is/sjonvarp) og nú einnig í RÚV appinu. Innskráningin virkar þannig að íslenskir notendur sem staddir eru erlendis og vilja sjá réttindavarið efni, beinar útsendingar eða upptökur, fá upp glugga sem segir þeim að þau geti skráð sig inn til að fá aðgang að efni sem er réttindavarið utan Íslands. Glugginn kemur aðeins upp hjá notendum sem staddir eru erlendis og aðeins upp í vafra. Innskráningin er framkvæmd með þjónustunni „Kenni“. Þar auðkenna notendur sig með rafrænum skilríkjum.
Go to News Site