Fréttastofa RÚV
Búast má við súld eða rigningu á austanverðu landinu í dag og stöku skúrum vestantil, einkum síðdegis. Þá spáir Veðurstofa Íslands norðaustanátt upp á 3-8 metra á sekúndu. Þá gæti hitastig hlaupið á bilinu 6 til 15 stig í dag. Á morgun gerir Veðurstofan ráð fyrir suðaustanátt upp á 8-13 metra á sekúndu austantil en annars hægri breytilegri átt annars staðar. Víða verði rigning og skúrir en lengst af þurrt norðaustanlands eftir hádegi. Hiti á bilinu 9 til 15 stig.
Go to News Site