Collector
Hafa fylgst með njósnaskipinu Yuri Ivanov í rúma viku | Collector
Hafa fylgst með njósnaskipinu Yuri Ivanov í rúma viku
Fréttastofa RÚV

Hafa fylgst með njósnaskipinu Yuri Ivanov í rúma viku

Rússneska njósna- og herskipið Yuri Ivanov fylgdist með æfingum Atlantshafsbandalagsins austur af Íslandi, Dynamic Mongoose, fyrir mánaðarmót. Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, segir ekki óeðlilegt að Rússar njósni um æfingar bandalagsins. Skipið sé ýmist að reyna að afla upplýsinga um æfinguna eða samskipti bandalagsríkja NATÓ, eða að reyna að koma upplýsingum til annarra rússneskra skipa. Fylgst hafi verið með því í þéttu samstarfi við bandalagsríki sem byggi á eftirliti sem styðst við kafbátaleitarvélar, skip og flugvélar. Eftirlit í nánu samstarfi bandalagsríkja Atlantshafsbandalagsins „Við höfum fylgst með þessu skipi í talsverðan tíma. Það er búið að vera að fylgjast með æfingum, sem sagt reglubundnum æfingum Atlantshafsbandalagsins hérna austur af landinu eða nær Noregi, Dynamic Mongoose-æfingunni,“ segir Jónas í viðtali við fréttastofu. Skipið hafi verið á siglingu í kringum æfinguna sem lauk rétt fyrir mánaðarmót. „Það er svo sem ekkert óeðlilegt að skip og flugvélar frá Rússlandi fylgist með slíkum æfingum hvar sem þær fara fram. Svo hefur bara verið fylgst með skipinu síðan. Það hefur verið auga með þessu skipi í að minnsta kosti viku, ef ekki lengur.“ Jónas segir að samstarf við bandalagsríki Atlantshafsbandalagsins í málinu hafi einkum byggst á skiptum á upplýsingum um hvar skipið sé statt og hvað það sé að gera. „Það er gert með ýmsum aðferðum. Það er náttúrulega hægt að nota skip og flugvélar og önnur eftirlitstæki til þess. Í gær var flogið að skipinu og staðfest og tekið myndir. Það er mjög gott, þetta þétta samstarf sem er í rauninni á milli bandamanna og líka á milli stofnana hér innanlands.“ Í tilkynningu á vef Stjórnarráðs Íslands segir að talið sé að skipið búi yfir takmörkuðum vopnabúnaði. „Það er annars vegar að reyna að ná upplýsingum, eða að hlera eða fylgjast með upplýsingum, í samskiptum milli bandalagsríkja, það er til dæmis eins og í tengslum við æfingar að hlusta og reyna að grípa og skilja betur hvað það er sem bandalagsríkin eru að gera, og svo hérna er það náttúrulega getur svo sem verið í samskiptum við önnur rússnesk skip. En þarna held ég að það sé nú fyrst og fremst verið að reyna að fylgjast með því hvað bandalagsríkin eru að gera í tengslum við þessa stóru æfingu.“ Hvernig horfir þetta við íslenskum yfirvöldum? „Það er alltaf fylgst mjög vel með þeim skipum og flugvélum sem eru hér í námunda við landið. Atlantshafsbandalagið og bandalagsríkin vinna mjög þétt saman þegar kemur að því að bæði fylgjast með skipum og flugvélum en líka að bregðast við ef þurfa þykir. Í þessu tilfelli erum við kannski fyrst og fremst bara að fylgjast með því sem fram fer og það munum við gera áfram eins nú sem endrum nær. Það er til dæmis eins og í tengslum við æfingar að hlusta og reyna að grípa og skilja betur hvað bandalagsríkin eru að gera,“ segir Jónas.

Go to News Site