Fréttastofa RÚV
Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit krónprinsessu Noregs, verður ekki leystur úr gæsluvarðhaldi til að vera við hlið móður sinnar sem er alvarlega veik. Áfrýjunardómstóll í Osló komst að þessari niðurstöðu í dag, og sneri þar með við ákvörðun héraðsdómstóls í borginni frá því í fyrradag. Høiby lagði þessa beiðni fram, eftir að norska konungsfjölskyldan tilkynnti að móðir hans, sem þjáist af alvarlegum lungnasjúkdómi, væri orðin veikari en áður og komin á biðlista eftir nýjum lungum. Í úrskurði áfrýjunardómstólsins segir að hættan á að Høiby brjóti aftur af sér, sé jafn mikil og áður. Einnig sé talin hætta á að hann reyni að nálgast konu í Frogner hverfinu í Osló sem hann var eitt sinn í sambandi við. Høiby hefur verið í gæsluvarðhaldi síðan í febrúar, þegar nýjar ásakanir komu fram á hendur honum, meðal annars um að hunsa nálgunarbann gagnvart konunni í Frogner hverfinu. Dómarar í máli Høiby eru þessa dagana að fara yfir málið, en samkvæmt norskum fjölmiðlum, er búist við að dómur yfir honum verði kveðinn upp næsta mánudag. Ellen Holager Andenæs, annar af tveimur lögmönnum Høiby segist vera mjög vonsvikinn fyrir hönd hans. „Maður getur rétt ímyndað sér hvernig honum líður,“ sagði hún við norska fjölmiðla í dag.
Go to News Site
Viðskiptablaðið
Mbl
DV
Vísir
Mbl
Vísir
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV