Fréttastofa RÚV
Fjöldi gestgjafaþjóða HM 2026 er haldið í þremur löndum í fyrsta sinn. Bandaríkin bera hitann og þungann af mótinu en leikið er í Kanada og Mexíkó sömuleiðis. Þetta er í fyrsta sinn sem HM karla er í Kanada, en bæði Bandaríkin og Mexíkó hafa haldið mótið áður. Mexíkó hélt HM 1970 og 1986 og mótið var í Bandaríkjunum 1994. Fjöldi þátttökuþjóða Þátttökuþjóðum á HM hefur verið verulega fjölgað. Nú eru þær 48 talsins í stað 32 eins og verið hefur síðan 1998. Þegar HM fór fyrst fram, árið 1930 í Úrúgvæ, voru keppnisþjóðirnar 13. Þær voru svo 16 á Ítalíu 1934 og það var fjöldinn lengst af 20. öldinni (reyndar voru bara 15 í Frakklandi 1938 og 13 í Brasilíu 1950). Þeim var svo fjölgað í 24 fyrir HM á Spáni 1982 og svo í 32 á HM 1998 í Frakklandi. Fjöldinn í ár breytir ýmsu; riðlarnir nú eru 12 talsins og í fyrsta sinn eru 32-liða úrslit á mótinu. Það eru því tvö efstu lið hvers riðils sem komast áfram og svo 8 bestu liðin í þriðja sæti riðlanna. Hér má finna allar upplýsingar um leikstaði og tíma mótsins VAR og reglur Myndbandsdómgæsla verður sífellt umfangsmeiri, hvað sem fótboltaáhugafólki kann að finnast um það. Í ár fá myndbandsdómarar aukið vægi til að grípa inn í. VAR skoðar hvort horn sem mark kemur upp úr hafi verið rétt, eða hvort dæmi hafi átt markspyrnu. VAR skoðar síðari gul spjöld, því þau leiða til rauða spjaldsins. Leikbrot áður en leikur fer aftur í gang. Þarna er átt við brot sóknarmanns áður en auka- eða hornspyrna er tekin. Ef dómari refsar röngum leikmanni. Fyrir utan þetta eru nokkrar lagfæringar á reglum. Þær eru: 10 sekúndur til að fara af velli. Þegar skiptiskiltið fer á loft hefur sá sem fara á út af 10 sekúndur til að yfirgefa völlinn. Annars þarf sá sem koma á inná að vera utanvallar í eina mínútu eða þar til leikur stöðvast næst. 5 sekúndur til að taka innkast eða markspyrnu. Ef dómara finnst lið vera of lengi að þessu flautar hann og lyftir höndinni og byrjar að telja niður. Ef lið eru lengi að taka innkast fær hitt liðið innkast, ef það er lengi verið að taka markspyrnu fær hitt liðið horn. Bannað að hylja munninn. Lendi leikmönnum saman mega þeir ekki hylja munninn. Þetta er til að koma í veg fyrir að leikmenn svívirði andstæðingana og þræti svo fyrir. Refsing hér gæti verið rautt spjald. Meiddir leikmenn af velli. Eins og áður þurfa leikmenn sem fá aðhlynningu án þess að refsað sé fyrir brot með spjaldi að yfirgefa völlinn. Nú þurfa þeir hins vegar að vera utan vallar í eina mínútu. Markmenn eru undanþegnir og sama gæti gilt um alvarleg meiðsli og árekstra þar sem leikmenn beggja liða liggja.
Go to News Site