Fréttastofa RÚV
Ríkisendurskoðun telur að áralangir misbrestir í samráði og samvinnu milli Reykjavíkurborgar, Isavia og Samgöngustofu hafi átt þátt í lokun flugbrautar 13/31, einnig þekktri sem flugbraut austur/vestur, á Reykjavíkurflugvelli í fyrra. Stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar var kynnt Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþings í morgun. Þar kemur fram að ágreiningur um túlkun reglna og samstarfsörðugleikar mhafi tafið fyrir grisjun trjáa í Öskjuhlíð sem nauðsynleg var til að tryggja flugöryggi. Flugbrautinni á Reykjavíkurflugvelli var lokað aðfaranótt 8. febrúar 2025 að kröfu Samgöngustofu. Stofnunin taldi há tré í Öskjuhlíð ógna flugöryggi. Þann 27. febrúar var veitt undanþága vegna sjúkraflugs, 19 dögum eftir lokun og mánuði síðar aflétti Samgöngustofa lokuninni. Um 1.600 tré hafa verið felld af Reykjavíkurborg í kjölfarið. Úttektin skoðaði starfshætti og verklag Isavia og Samgöngustofu í aðdraganda lokunar flugbrautarinnar, aðkomu og framkvæmd innviðaráðuneytis á ákvæðum um loftferðir og samskipti þeirra á milli. Ríkisendurskoðun ályktar ekki um starfshætti Reykjavíkurborgar þar sem eftirlitsheimildir embættisins gagnvart sveitarfélögum eru takmarkaðar. Þó er gerð grein fyrir ákvörðunum þeirra þar sem við á í skýrslunni. Undanþága fyrir sjúkraflugi hefði átt að liggja fyrr fyrir Þótt lokunin hafi haft takmörkuð áhrif á daglega starfsemi flugvallarins bendir skýrslan á að hún hafi gert flugrekstraraðilum erfiðara fyrir að bregðast við ófyrirséðum aðstæðum. Að mati Ríkisendurskoðunar verður ekki annað séð en að skilyrði þess að veita sjúkraflugi undanþágu hefðu átt að liggja fyrir mun fyrr. Þau gögn sem Ríkisendurskoðun hefur aflað benda ekki til þess að það hafi verið forgangsmál af hálfu Isavia eða Samgöngustofu að takmarka röskun á sjúkraflugi. Þvert á móti benda þau til þess að þær takmarkanir hafi verið nýttar til að knýja fram aðgerðir af hálfu borgarinnar. Innviðaráðuneytið, Samgöngustofa og Isavia hafna því að ekki hafi verið lögð áhersla á að takmarka röskun sjúkraflugs. Ákvörðun um lokun hefði verið nauðsynleg til að tryggja flugöryggi og engin efnisleg sjónarmið réttlætt að undanskilja sjúkraflug í því tilliti. Samkvæmt skýrslunni liðu nærri þrjú og hálft ár frá því Isavia lagði fram tillögu um grisjun trjáa í Öskjuhlíð vegna flugöryggis þar til Reykjavíkurborg hóf aðgerðir. Eftir að trjáfellingar hófust tók 19 daga að skapa skilyrði fyrir undanþágu vegna sjúkraflugs og alls 47 daga að afnema lokunina að fullu. Áralangir misbrestir á samráði og samvinnu Ríkisendurskoðun bendir á að alþjóðlegar flugöryggiskröfur séu ekki samkomulagsatriði og að trjáfellingar sem nauðsynlegar eru til að uppfylla slíkar kröfur verði að fara fram. Um þá þætti gildi alþjóðlegar kröfur sem ekki eru umsemjanlegar. Í aðdraganda þess að Samgöngustofa kallaði eftir lokun flugbrautarinnar hafi áralangir misbrestir á samráði og samvinnu komið í ljós. Reykjavíkurborg hafi greint á við Isavia og Samgöngustofu um túlkun skipulagsreglna flugvallarins. Ríkisendurskoðun bendir á að lög um loftferðir leggi gagnkvæma samráðsskyldu á sveitarfélög og rekstraraðila flugvalla í samræmi við alþjóðlegar kröfur um flugöryggi. Isavia beri að grípa til nauðsynlegra ráðstafana til að draga úr áhættu og gera Samgöngustofu og borginni viðvart. Það sé svo sveitarfélagsins að tryggja framfylgd við skipulagsreglur flugvallar. Innviðaráðuneytið þurfi að tryggja áframhaldandi samstarf milli ríkis og Reykjavíkurborgar hvað snýr að þróun flugstarfsemi í Vatnsmýri. Samkvæmt samgönguáætlun er gert ráð fyrir flugvellinum þar til annar betri kostur liggur fyrir. Sá kostur sé ekki í sjónmáli og því kunni að reynast nauðsynlegt að endurnýja samkomulag ríkis og borgar. Komi til þess er brýnt að málefni er lúta að flugöryggi og fylgni við alþjóðlegar kröfur verði ekki gerð að samkomulagsatriði, líkt og raunin hefur verið. Reyndu að fá borgina til að grisja skóginn í tvö ár Eftir samráðsfund Isavia og innviðaráðuneytis í september 2023 var það mat ráðuneytisins að samskipti milli félagsins og Reykjavíkurborgar væru stirð vegna trjáfellinga í Öskjuhlíð. Á þeim tíma hafði Samgöngustofa ekki hafið íhlutun sína vegna málsins enda var flugöryggi ekki ógnað með tilliti til ráðstafana sem Isavia hafði gripið til. Isavia hafði aftur á móti reynt án árangurs í rúmlega tvö ár að fá Reykjavíkurborg til að grisja skóginn í Öskjuhlíð. Ríkisendurskoðun mælist til þess að innviðaráðherra setji skýrar reglur um samráð sveitarfélaga og rekstraraðila flugvalla og heimildir Samgöngustofu til að framfylgja skipulagsreglum. Endanleg niðurstaða ekki náðst Bent er á að skipulagsreglur Reykjavíkurflugvallar hafi ekki verið endurskoðaðar síðan 2009 þrátt fyrir miklar breytingar á lagaumhverfi, skipulagsmálum og alþjóðlegum öryggiskröfum. Endurskoðun þeirra hefur verið á dagskrá frá árinu 2013 án þess að henni hafi verið lokið. Ekki hefur náðst endanleg niðurstaða eftir íhlutun Samgöngustofu vegna framfylgdar skipulagsreglnanna. Meðal þess sem stofnunin fór fram á var aðgerðaáætlun um trjáfellingar af hálfu Reykjavíkurborgar í samvinnu við Isavia. Sú áætlun hefur ekki verið staðfest af hálfu Samgöngustofu en Reykjavíkurborg og Isavia hafa sammælst um tiltekna grundvallarþætti, þar á meðal að aðflugssvæði flugbrautar 31 verði laust við hindranir til framtíðar.
Go to News Site