Collector
Giriş Yap
Fresta dómsuppsögu yfir manni sem sakaður er um að þvinga eiginkonu sína í vændi | Collector
Fresta dómsuppsögu yfir manni sem sakaður er um að þvinga eiginkonu sína í vændi

Fresta dómsuppsögu yfir manni sem sakaður er um að þvinga eiginkonu sína í vændi

Dómstóll í Harnosand í Svíþjóð hefur frestað því að kveða upp dóm yfir rúmlega sextugum manni sem sakaður er um að hafa þvingað eiginkonu sína í vændi með yfir hundrað vændiskaupendum. Saksóknarar hafa farið fram á tíu ára fangelsi yfir manninum, sem neitað hefur öllum sakargiftum og hefur verið í varðhaldi síðan hann var handtekinn í október í fyrra. Manninum er gefið að sök að hafa gert auglýsingar og tekið við greiðslu frá um 120 vændiskaupendum; hann er einnig ákærður fyrir átta tilvik nauðgunar. Málið hefur vakið mikinn óhug í Svíþjóð. Það þykir minna á umtalað mál frönsku konunnar Gisele Pelicot, en eiginmaður hennar var dæmdur fyrir að hafa byrlað Pelicot eitur og leyft fjölda manna að nauðga henni. Saksóknarar segja að konan sé manneskja í mjög viðkvæmri stöðu. „Ég held því fram að hann hafi fært sér stöðu hennar í nyt, hún hefur verið undir áhrifum eiturlyfja og áfengis og hefur verið mjög hrædd við manninn,“ sagði Ida Annersted saksóknari við AFP fréttaveituna. Starfsmaður dómstólsins í Harnosand sagði við AFP að umfang málsins og álag á dómstólnum hefði valdið því að dómsuppsögunni hafi verið frestað. Búist verið að dómur yfir manninum verði kveðinn upp eftir tæpa viku.

Go to News Site