Collector
Giriş Yap
Hæna með andarunga í fóstri í Skaftholti | Collector
Hæna með andarunga í fóstri í Skaftholti

Hæna með andarunga í fóstri í Skaftholti

Í Skaftholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi er rekið heimili og vinnustaður fyrir fólk sem þarf verndað og stuðningsríkt umhverfi, samhliða lífrænum búskap og matvælaframleiðslu. Kýr eru til dæmis á bænum, sem ganga með kálfana undir sér og nautið Bessi á líka heima í Skaftholti. En aðalmálið þessa dagana er hænan og andarunginn. „Já þessi litli andarungi kom heim til okkar klukkan eitt um nótt og kisurnar mínar þrjár heima fundu hann,” segir Claudia Breitsprecher, framkvæmdastjóri Skaftholts, sem ákvað svo að fara með ungann til hænu í hænsnakofanum. „Hún tók bara strax á móti honum, hún var ekki einu sinni hissa á því hvort þetta væri eitthvað öðruvísi. Hún bara opnaði vængina og hann fór bara beint undir,” segir Claudia alsæl með viðbrögð hænunnar. Unginn var svo einn með hænunni í nokkra daga en svo bættust sjö hænsna ungar við sem Claudia fékk hjá hænsnabónda í Flóahreppi. „Mamman bara, ókei, ég er komin með fleiri börn og opnaði vængina og allir undir,” segir Claudia hlæjandi. Hún segir yndislegt hvað hænan reynist öllum ungunum vel og ekki síst andarunganum, sem lætur fara vel um sig í hænsnakofanum. En hvað verður um andarungann þegar hann stækkar? „Hann bara verður hér í sér herbergi í hænsnakofanum þangað til hann stækkar og svo getur hann bara verið í hænsnahópnum. Við þurfum bara að bæta við sundlaug fyrir hann svo hann geti synt,” segir Claudia. Emil Páll, sonur Claudíu er mjög hrifinn af andarunganum. En er búið að skíra ungann og ákveða hvað hann heitir? „Ég veit það ekki, eiginlega veit ég það bara ef hann er orðinn stór og fær grænan haus, ef hann er maður, þá fær hann grænan haus en ef hann er stelpa þá er hann bara eitthvað svona eins og hann er núna,” segir Emil Páll, sem er sjö ára. Hæna á bæ á Suðurlandi hefur tekið sér andarunga sem hún hugsar um eins og sína eigin unga enda þrífst andarunginn vel hjá hænunni.

Go to News Site